<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T20:35:14" skst="GIK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:40:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:35:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Í stefnuyfirlýsingu
    ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að fjármögnun í velferðar- og
    heilbrigðismálum náist fyrst og fremst með aga í ríkisfjármálum,
    breytingum á skattkerfinu og aukinni skilvirkni. Almannatryggingakerfið er
    orðið 90 ára og orðið ansi þreytt, stagbætt og bútasaumaður öldungur.
    Keðjuverkandi skerðingar í lífeyrislaunum eru of miklar og því miður ná
    þær oft út yfir dauða og gröf. Nú er kominn tími á að þetta háaldraðra 90
    ára gamla kerfi fái varanlega hvíld og að tekið verði upp nýtt og
    sanngjarnt og mannúðlegt kerfi sem allir skilja; kerfi þar sem aldraðir og
    öryrkjar verða ekki fyrir afturvirkum skerðingum, ekki bara yfir í
    félagslega kerfið heldur einnig eftir andlát. Gleymum ekki að við erum með
    kerfi þar sem á einu ári 61.000 einstaklingar af 85.000 einstaklingum
    fengu rangt greitt. Það er ekki í lagi og því verðum við að breyta.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvað með þá sem verst standa fjárhagslega í
    almannatryggingakerfinu? Stefna ríkisstjórnarinnar er að vernda þá og sjá
    til þess að hækkanir í heilbrigðiskerfinu og á öðrum nauðsynjum verði ekki
    til þess að viðkomandi neiti sér um lífsnauðsynlega þjónustu vegna
    efnahags. Ég veit að stefna ríkisstjórnarinnar er að vernda þennan hóp og
    það verðum við sérstaklega að gera. Komugjöld vegna heilbrigðisþjónustu
    hafa hækkað og nýjum komugjöldum í sjúkraþjálfun hefur verið komið á. Með
    því stefna því miður þeir verst settu í það að þurfa að neita sér um þessa
    þjónustu. Afleiðingarnar verða þær að viðkomandi endar á sjúkrastofnun,
    sem er versti kosturinn og langdýrastur. Er ekki kominn tími til þess t.d.
    að tekjutengja þennan kostnað? Ég væri ekki í þessum ræðustól hér án
    sjúkraþjálfunar einu sinni í viku. Ég borga 1.000 kr. í komugjöld á mínum
    launum, sem er það sama og aldrað fólk á lágmarkslífeyri borgar. Mér
    finnst þetta ekki sanngjarnt því að þeir sem eru á lægstu laununum og
    lífeyri eiga að fá frítt. Þeir sem hafa efni á því að borga eiga t.d. að
    borga stighækkandi miðað við tekjur. Það sama má segja um sektir vegna
    umferðarlaga. Hvers vegna eru þær ekki tekjutengdar? Ef sekt á að bíta
    alla jafnt er það eina leiðin. <!--LE: "kerfi þar sem á einu ári 61.000 einstaklingar ..."Les þetta frekar óskýrt. Bætti við "einu" (ári)--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er einnig kominn tími á uppgjör á bótasjóðum tryggingafélaga
    því að þar liggja milljarðar króna, fé án hirðis, sem mætti t.d. nota í
    heilbrigðiskerfið. Skaðabótalögin þarf einnig að endurskoða þannig að
    bótaþolar fái tjón sitt raunverulega bætt og þá einnig gjafsókn til þeirra
    sem hafa ekki efni á að berjast við tryggingafélögin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þá hefur verið samþykkt að aldurstengd uppbót
    öryrkja verði þeirra lífeyrislaun við 67 ára aldur því að fatlaðir frá
    fæðingu eða unga aldri eiga eðli málsins samkvæmt sjaldan fjárhæðir í
    lífeyrissjóðunum. En betur má ef duga skal ef við ætlum að sjá til þess að
    enginn lækki í lífeyrislaunum við það eitt að fara af örorkulífeyri yfir á
    ellilífeyri. Í dag verða þeir sem eru öryrkjar á seinni hluta
    æviskeiðsins, sem eru að meiri hluta konur, fyrir tugþúsunda lækkun á
    lífeyrisgreiðslum við það eitt að fara af örorku yfir í
    ellilífeyriskerfið. Í ríkisstjórnarsáttmálanum segir að tekin verði
    markviss skref í átt að því að bæta afkomu öryrkja og eldra fólks og að
    lífeyrir muni fylgja launaþróun. Til þess að þetta virki fyrir alla þá sem
    eru á lífeyrislaunum frá TR verður að taka á skerðingum og keðjuverkandi
    skerðingum í kerfinu. Frítekjumörk bóta verða að hækka, eins og t.d.
    húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur.<!--segir: ellilífeyrislaunakerfið.--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. PISA. Já, ný PISA-könnun hefur verið birt.
    Eigum við að fara á límingunum vegna þess? Nei, vinnum öll saman og finnum
    leiðir til að snúa þessari þróun við. Eflum allt skólakerfið og þá einnig
    verknámsskólana. Sjáum til þess að allir sem vilja læra verknám geri það
    og þá einnig þeir eldri nemendur sem það vilja. Til þess þarf klárlega að
    byggja verknámsskólana um land allt eins og stefnt er að. Þá er þörf á að
    upplýsa almenning og útrýma ýmsum mýtum eins og þeirri að við þingmenn
    höldum fullum launum er við förum á eftirlaun. Auðvitað borgum við í
    lífeyrissjóðina eins og aðrir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Íþróttahreyfingin þarf aukið fjármagn því að
    hún vinnur frábært forvarnarstarf. Er ekki kominn tími til að sýna, ekki
    bara í verki heldur í fjárveitingum til hennar, hvað við metum hana
    mikils? Fjármagn þarf til að styðja við uppbyggingu og þróun
    íþróttamannvirkja um allt land og að markvisst verði fjárfest í
    afreksstarfi, fræðslu, jöfnu aðgengi og verkefnum fyrir allar
    íþróttahreyfingar til framtíðar. Gerum íþróttunum hátt undir höfði.
    Mennta-, barna- og íþróttamálaráðuneytið. Hljómar það ekki vel? <!--LE: heyrist hann segja: í afreksstarfi, fræðslu, jöfnu aðgengi og verkefnIS UM allar íþróttahreyfingar til framtíðar.--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru landsmenn. Eigið góðar stundir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>