<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-09T20:40:40" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:45:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:40:40">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Kæru landsmenn. Síðastliðin áramót tók ég þátt í
    kosningu um orð ársins og kaus orðið innviðaskuld og það ekki að
    ástæðulausu. Undanfarna áratugi hefur myndast mikil innviðaskuld í
    heilbrigðiskerfinu. Hún endurspeglast í skorti á starfsfólki, húsnæði,
    tækjakosti og rafrænum kerfum, ásamt löngum biðlistum, en ríkisstjórn
    Kristrúnar Frostadóttur hefur heitið því að styrkja stoðir heilbrigðis- og
    öldrunarþjónustu um allt land.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á síðastliðnu ári var geðheilbrigðisþjónusta og fíknimeðferð efld
    til muna. Þjóðarátak í umönnun eldra fólks hófst og kyrrstaða í
    uppbyggingu hjúkrunarheimila var rofin svo um munar. Það endurspeglast í
    betri stöðu á Landspítala. Áfram er unnið markvisst að því markmiði að fá
    fastan heimilislækni fyrir alla. Árangur hefur þegar náðst en mun taka
    tíma því hér vantar á annað hundrað heimilislækna. Ríkisstjórnin hefur
    ákveðið að styrkja myndarlega við sérnám lækna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Áhersla er á nýtingu tækni og gervigreindar, stafræna þróun og
    nýsköpun hvar sem við verður komið. Um það höfum við stofnað sérstaka
    einingu, Stafræna heilsu. Þá er verið að stíga fyrstu skrefin inn í
    framtíðina með hagnýtingu erfðaupplýsinga. Þessar áherslur endurspeglast í
    þingmálaskrá. En verkefnalistinn er lengri; mönnun og menntun
    heilbrigðisstétta, aukið aðgengi að heilsugæslu og þjónustu, ekki síst á
    landsbyggðinni, heilbrigðisviðbúnaður, endurhæfing, uppbygging húsnæðis og
    margt fleira.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Eitt mikilvægasta og arðbærasta verkefni hvers
    samfélags er að hlúa að börnum. Þau eru framtíð þjóðar og fjársjóður en
    það eru blikur á lofti. Fleiri börn og ungmenni greina frá depurð, kvíða
    og einmanaleika. Við sjáum líka hegðunarvanda, ofbeldi og fíkn. Börn eiga
    ekki að bíða eftir þjónustu. Þess vegna hefur stytt bið eftir greiningu og
    meðferð verið forgangsverkefni hjá mér frá fyrsta degi. Þar eru mörg
    flókin og tímafrek verkefni undir en árangur er í augsýn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum öll heyrt átakanlegar sögur barna sem orðið hafa fyrir
    ofbeldi. Nú í haust hefst skimun í grunnskólum til að ná til barna sem
    þarfnast stuðnings í kjölfar ofbeldis. Þau munu svo fá viðeigandi þjónustu
    í Bryndísarhlíð sem opnar í febrúar og hjá nýju áfallateymi barna á
    Landspítala. En, frú forseti, vaxandi vandi verður ekki leystur með
    meðferðarúrræðum einum saman. Við verðum að ráðast að rótum vandans og
    snúa þróuninni við. Líkur eru á að hér skipti notkun net- og
    samfélagsmiðla miklu, einnig óhollir lifnaðarhættir eins og of lítil
    hreyfing, óhollt mataræði, orkudrykkir, nikótínvörur og aukið aðgengi að
    áfengi og vímuefnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mín þingmál snúa m.a. að lýðheilsu barna og vörnum gegn nikótíni.
    Munum líka að við fullorðin erum fyrirmyndir hvað alla þessa þætti varðar.
    Börnin gera ekki eins og við segjum, þau gera eins og við gerum. Almennt
    mælast einkenni vanlíðanar meiri hjá börnum sem búa við slæma fjárhagslega
    stöðu. Ég er stolt af að starfa í ríkisstjórn sem vill uppræta fátækt og
    styðja við þau sem höllustum fæti standa. Ríkisstjórnin hyggst ráðast í
    samstillt átak til að efla heilsu og velsæld barna og ungmenna. En það er
    ljóst, frú forseti, að vandann þarf að leysa með samfélaginu öllu. Nelson
    Mandela sagði, með leyfi forseta, að það hvernig samfélag kemur fram við
    börn sín endurspeglar sál þess.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Góðir landsmenn. Nú er gulur september, vitundarvakning um geðrækt
    og sjálfsvígsforvarnir. Látum okkur líðan náungans varða, þorum og lærum
    að tala um andlega líðan. Samtal getur bjargað lífi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hlakka til komandi þingvetrar og að starfa í
    þágu lands og þjóðar með gildi okkar jafnaðarmanna að leiðarljósi. — Góðar
    stundir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>