<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T20:45:53" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:49:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:45:53">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Við myndun ríkisstjórnarinnar
    sagði formaður Viðreisnar skýrt, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--Hún segir þetta á blaðamannafundi, sjá klippu hér en ég hlustaði og sannreyndi þetta / ii: 
https://www.facebook.com/groups/thjodmalin/posts/1445494427249064/-->

    <ns:mgr>„Ég vil taka það fram í þessu samhengi líka, við ætlum ekki að
    hækka tekjuskatta á fólk, við ætlum ekki að hækka skatta á lögaðila, við
    ætlum ekki að hækka fjármagnstekjuskatta og við ætlum ekki að hækka
    virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta voru ekki óljós orð. Þau voru ekki sögð í hálfkæringi. Þetta
    voru loforð við fólk, venjulegt fólk, og fyrirtækin í landinu. En hvað
    hefur dunið á landsmönnum frá því að þessi ríkisstjórn tók við?
    Skattahækkanir, skattahækkanir og aftur skattahækkanir. Loforðin hafa
    verið svikin. Ríkisstjórnin talar um mikilvægi þess að leggja fram
    hallalaus fjárlög. Um það getum við verið sammála en það eru aðrar og
    betri leiðir til þess. Það þarf ekki ætíð að ætlast til að almennir
    borgarar herði sultarólina. Ríkið getur líka gert það og miklu frekar
    heldur en heimilin. Spurningin á ekki að vera: Hvern getum við rukkað
    meira? Fyrsta spurning ábyrgra stjórnmálamanna á að vera: Hvar getum við
    farið betur með fé? Hvernig minnkum við umsvif ríkisins? Í síðustu
    fjárlögum hækkuðu skattar og gjöld á heimilin og fyrirtækin í landinu um
    30 milljarða. Þrátt fyrir varnaðarorð okkar hélt ríkisstjórnin ótrauð
    áfram. Og hvað gerðist? Verðbólgan fór á flug, atvinnuleysi jókst og
    vextir hækkuðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er fjölskyldan sem greiðir nú hærri vexti
    af íbúðinni sinni. Það er iðnaðarmaðurinn sem sér verkefnunum fækka. Það
    herðir að hjá ferðaþjónustufyrirtækinu úti á landi sem hefur fjárfest,
    skapað störf og byggt upp þjónustu þar sem áður var jafnvel lítið
    atvinnuframboð. Já, loforðin hafa verið svikin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verst er að þessi ríkisstjórn hefur ekkert lært. Formaður Flokks
    fólksins er enn þá með Visa-kortið og er hvergi hætt að eyða um efni fram,
    af annarra manna fé. Nú á að hækka skatta og gjöld um 34 milljarða til
    viðbótar við þá 30 milljarða sem voru lagðir á þjóðina fyrir tæpu ári
    síðan. Enn eru loforðin svikin. Ferðaþjónustan fær yfir 11 milljarða í
    nýjar álögur, byggingariðnaðurinn auknar byrðar og einstaklingar greiða
    hærri skatta. Sjúklingar borga meira og hækkun bankaskatts mun þrýsta upp
    vöxtum. Enginn sleppur og allra síst venjulega fólkið sem ríkisstjórnin
    ætlaði að hlífa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því kemur það ekkert á óvart að 85% þeirra sem tóku afstöðu
    treysti ekki ríkisstjórninni til að ná tökum á efnahagsmálunum. Það er mér
    til efs að nokkur ríkisstjórn í lýðveldissögunni hafi fengið annan eins
    áfellisdóm frá þjóðinni. En þetta er ekki eini dómur þjóðarinnar yfir
    verkum og stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
    Ríkisstjórnarflokkarnir guldu afhroð í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
    Hraðaupphlaup hæstv. utanríkisráðherra í að koma þjóðinni í
    Evrópusambandið endaði með óverjandi skoti í eigið mark.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru landsmenn. Ríkisstjórnin skreytir sig með verkum sem hvíla á
    því að leggja þyngri og þyngri byrðar á hinn vinnandi mann. Um slíka
    stjórn komst skáldið góða frá Fagraskógi ágætlega að orði:</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:vísa>
        <ns:erindi><ns:lína>Löggjafar, sem lítið skilja,</ns:lína><ns:lína>lúta aldrei fólksins vilja,</ns:lína><ns:lína>koma öllu á vonarvöl.</ns:lína><ns:lína>Verða sjálfir – þjóðarböl.</ns:lína></ns:erindi>
      </ns:vísa></ns:mgr>

    <!--ii / Fann kvæðið hér: https://timarit.is/page/5294433#page/n2/mode/2up-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>