<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-09T20:50:08" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:54:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:50:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Stærsta áskorun Íslands
    hefur alla tíð verið skortur á trausti á stjórn efnahagsmála. Sá skortur
    hefur átt ríkan þátt í að sveiflur af ýmsu tagi hafa magnast upp að óþörfu
    og valdið tjóni, bæði fyrir heimili og atvinnulíf. Þetta hefur verið meira
    og minna saga okkar frá því að við urðum sjálfstæð þjóð. Þessu verðum við
    að breyta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það tekur langan tíma að ávinna sér traust en afar skamma stund að
    glutra því niður aftur. Það er eitt mikilvægasta verkefni þessarar
    ríkisstjórnar að byggja upp þetta traust. Það gerum við með ábyrgri stjórn
    efnahagsmála og staðfestu. Traust verður einungis byggt upp með
    sanngjörnum leikreglum, aga og festu, bæði þegar vel gengur og þegar á
    móti blæs. Markmið stjórnvalda í efnahagsmálum þurfa að vera skýr og öllum
    ljós. Það þarf að taka ábyrgð á þeim og hafa þor til að forgangsraða með
    langtímahagsmuni að leiðarljósi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég trúi því að forsendur trúverðugrar efnahagsstefnu á Íslandi séu
    í meginatriðum þrjár: Öflug verðmætasköpun, sjálfbær rekstur ríkissjóðs og
    stöðug króna, en trúverðugleiki stöðugrar krónu næst ekki nema hún hvíli á
    trausti til efnahagsstefnunnar. Án þess trúverðugleika munum við
    Íslendingar alltaf búa við sveiflur, verðbólgu og háa vexti. Af þessum
    sökum verður stjórn efnahagsmála alltaf að vera í öndvegi. Það liggur
    alveg fyrir hvað þarf að gera. Nágrannalöndin hafa öll tekið á
    sambærilegum vandamálum og náð tökum á sveiflum með ábyrgri stjórn
    efnahagsmála. Við verðum að þora að setja aga í efnahagsmálum í fyrsta
    sæti og fjárfesta í stöðugleika til langs tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórn Viðreisnar, Flokks fólksins og Samfylkingarinnar er
    sammála um þetta grundvallaratriði. Verkefnið er hvorki einfalt né
    auðvelt. Það er engin ástæða til að draga fjöður yfir það. Við þekkjum öll
    áskoranir og erfiðleika í eigin daglega lífi eða í rekstri fyrirtækjanna.
    Við vitum, held ég flest, að stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir til
    þess að búa í haginn fyrir framtíðina. Rekstur ríkissjóðs er að þessu
    leyti ekkert frábrugðinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við Íslendingar erum í öllum aðalatriðum lánsöm þjóð. Við búum í
    mjög góðu samfélagi. Við höfum alla burði til að gera það enn betra. Við
    höfum oft sýnt að við sem þjóð höfum kjarkinn til að taka erfiðar
    ákvarðanir þegar nauðsyn krefur. Sagan kennir okkur að þá lætur árangurinn
    ekki á sér standa. Við eigum ekki að sætta okkur við óbreytt ástand
    sveiflna, mikillar verðbólgu og hárra vaxta. Ég held að ekkert okkar vilji
    bjóða börnunum okkar upp á óbreytt ástand, áframhald af því sem hefur
    gilt. Það ætlum við í Viðreisn og þessi ríkisstjórn heldur ekki að
    gera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Ég og ríkisstjórnin erum öll
    sannfærð um að stærsta og besta búbótin fyrir almenning og fyrirtæki í
    landinu sé minni verðbólga og lægri vextir. Hallalaus fjárlög eru
    langmikilvægasta framlag okkar til þess að gera það að veruleika og byggja
    um leið forsendur fyrir stöðugleika til framtíðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>