<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T20:54:39" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 21:01:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:54:39">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Í kjölfar
    þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst hefur verið áhyggjuefni að fylgjast með
    fyrstu skrefum þeirra sem mestu ráða nú um stundir í ranni
    stjórnarflokkanna. Sú niðurstaða að ríflega ríflegur meiri hluti
    þjóðarinnar hafi skundað á kjörstað og sagt pent: Nei, takk, við
    áframhaldandi ESB-vegferð virðist sitja illa í þeim sem urðu undir.
    Utanríkisráðherra hefur nú skrifað þeirri í forsæti Brussel bréf þar sem
    áréttað er að staða okkar skuli álitin óbreytt þrátt fyrir niðurstöðuna,
    þ.e. að fyrirvaralaus umsókn okkar um aðild að ESB frá 2009 sé enn
    virk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti Alþingis sagði við þingsetningu í gær, með leyfi, að þetta
    væri okkur allt í fersku minni og einnig niðurstaðan, sem varð að
    endurvekja ekki umsóknina að svo komnu máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það var ekki niðurstaðan. Niðurstaðan var að
    endurvekja umsóknina ekki. Punktur. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar ber
    þess heldur engin merki að áform séu uppi um að draga hina gömlu útjöskuðu
    aðildarumsókn til baka. Það sem blasir við okkur nú er að nú skal fara
    bakdyramegin inn, með þó nokkru offorsi þó, þar sem bókun 35 verður í
    lykilhlutverki með fordæmalausri afturvirkni gagnvart gildandi rétti á
    Íslandi á sama tíma og EES-innleiðingarmálum fjölgar verulega á milli ára.
    Voru það skilaboðin sem þjóðin sendi í lok ágúst, að við vildum meira ESB?
    Það held ég ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. forsætisráðherra sagði í ræðu sinni áðan að við værum ein
    þjóð í einu landi. Ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að íhuga þetta í
    því samhengi að ríkisstjórnin fór í þá vegferð sem raunin varð, sem fór
    langleiðina með að kljúfa þjóðina í herðar niður, og sýna smá lítillæti í
    því samhengi. Steininn tók svo úr þegar hæstv. utanríkisráðherra kom hér í
    pontu. Ef einhver velktist í vafa um að utanríkisráðherra væri áhugalaus
    um að leiða ágreining í jörðu, að skapa sátt í samfélaginu, þá var þeim
    vafa eytt hér fyrr í kvöld. Formaður Viðreisnar, hæstv. utanríkisráðherra,
    hefur sérhæft sig í því að gera pólitískum andstæðingum sínum upp skoðanir
    og skamma þá svo fyrir að hafa þær. Það er einhvern veginn þannig að sú
    ræða sem hér var flutt áðan var vondur kokteill af biturð, heift og
    hefnigirni og verður vonandi ekki sá taktur sem við munum ganga undir í
    gegnum þennan þingvetur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin hefur frá upphafi lagt mikla
    áherslu á eigið verkvit, verkstjórn kölluðu þær sig, valkyrjurnar. Það
    vekur því athygli í miðju skatta- og gjaldahækkanahavaríi stjórnvalda að
    hinum svokallaða bandormi, þar sem gjaldabreytingar eða öllu heldur
    gjalda- og skattahækkanir stjórnvalda eru útlistaðar, skuli ekki hafa
    verið dreift á sama tíma og fjárlagafrumvarpinu sem verður til umræðu á
    morgun. Það er alsiða að fjárlagafrumvarpi og bandormi sé dreift á sama
    tíma til að auðvelda þingmönnum og landsmönnum öllum að glöggva sig á
    áformum stjórnvalda, en ekki núna. Nú skal þetta allt gert eins ógagnsætt
    og hægt er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forsætisráðherra sagði í viðtali við þingsetningu í gær, með leyfi
    forseta, að maður eigi ekki að fara í felur með það sem maður er að gera.
    Þetta hljómar auðvitað skynsamlega en er um leið kostulegt í því samhengi
    að ríkisstjórnin, sem hæstv. ráðherra fer fyrir, kallar skattahækkanir
    öllum öðrum nöfnum en þeim réttu. Við þekkjum þetta: Aðhald á tekjuhlið,
    það er stoppað í glufur, leiðrétting er vinsæll orðaleppur. Þið vitið hvað
    ég er að fara að. Allt eru þetta á endanum skattahækkanir og á næsta ári
    skulum við fá viðlíka viðbótarskatt af þeim og í ár. Þau eiga nefnilega
    engin önnur svör en skattahækkanir; hærri skatta, hærri skatta, hærri
    gjöld. Loforð gefin, loforð efnd, segir hæstv. forsætisráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Vinnulag ríkisstjórnarinnar hefur hingað til markast af
    yfirgripsmiklum skorti á verkviti, mál komu seint inn í þingið,
    forgangsröðin riðlaðist, samráð helst til að sýnast og ríkisstjórnin
    virtist á köflum jafn hissa og stjórnarandstaðan á eigin dagskrá. Svo
    þegar ríkisstjórnin lendir í vandræðum með að fjármagna útgjaldafylliríið
    grípur hún í veski skattgreiðenda. Það er merkileg tegund af aðhaldi þar
    sem ríkið heldur áfram að eyða en almenningi er sagt að herða sultarólina.
    Tugmilljarða skattahækkanir blasa við önnur fjárlögin í röð og ekkert
    bendir til þess að stjórninni þyki nóg komið. Nú er það ferðaþjónustan sem
    fær þyngstu höggin en áformuð viðbótarskattheimta úr þeim ranni samsvarar
    rúmlega helmingi af heildarafkomu allrar greinarinnar árið 2024. Heldur
    ríkisstjórnin virkilega að þetta ýti undir fjárfestingu? Ríkisstjórnin
    lofaði nefnilega að ná tökum á ríkisfjármálunum en hingað til hefur hún
    fyrst og fremst náð tökum á veski skattgreiðenda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í stað þess að ríkisstjórnin spyrji hvernig
    við getum aukið gjaldeyristekjur Íslands virðist hún spyrja sig: Hverja
    getum við blóðmjólkað næst? Sjávarútvegurinn má borga meira,
    ferðaþjónustan má borga meira, fjölskyldubíllinn má kosta meira,
    orkugeirinn má borga meira, bankarnir mega borga meira og
    viðskiptavinirnir í framhaldinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin sótti umboð til að gera fernt: Ná niður verðbólgu,
    lækka vexti, ná stjórn á ríkisfjármálum og auka verðmætasköpun. Hvað af
    þessu hefur gengið eftir? Ekki eitt atriði. Loforð gefin, loforð
    svikin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Vandamál þessarar ríkisstjórnar er ekki
    skortur á slagorðum. Við höfum fengið nóg af þeim. Vandinn er rof á milli
    orða og efnda. Það er enginn kjarkur eða þor í ríkisstjórninni til að
    stíga stóru skrefin sem þarf til að rétta þjóðarskútuna af í ólgusjó vaxta
    og verðbólgu. Það þarf að skera niður, hætta fjáraustri og vera með
    fókusinn á heimahögum en ekki kokteilboðum í Brussel. Miðflokkurinn er
    ekki hræddur við það. Verkefnið er skýrt og við erum klár. Það þarf nýja
    ríkisstjórn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>