<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-09T21:01:36" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 21:05:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T21:01:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Kæru landsmenn. Húsnæðismarkaðurinn hefur verið á
    vondum stað og hefur verið það allt of lengi. Við þurfum sameiginlega sýn
    um hvernig við komumst út úr þessum vítahring þar sem íbúðamarkaður er
    annaðhvort botnfrosinn eða á bullandi suðu. Það er ótækt að sveitarfélög
    líti á byggingarland eingöngu sem tekjulind og ýti þannig undir lóðabrask
    þar sem hver einasta króna er kreist áður en uppbygging á sér
    stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er ótækt að eitt sveitarfélag geti stöðvað vöxt annars vegna
    neitunarvalds á svæðisskipulagi eða vaxtamörkum. Það er ótækt að heil
    hverfi séu í biðstöðu áratugum saman vegna þess að einhver banki eða
    fjárfestir er að bíða eftir því að fá rétt verð fyrir landið. Það er ótækt
    að næstu kynslóðir komust ekki inn á íbúðamarkað vegna þess ástands sem
    skapast hefur síðustu ár og áratugi á ábyrgð og á vakt stjórnmálanna. Það
    er með öllu ótækt að tíu ár líði frá fyrstu snertingu verkefna við
    skipulag og þar til búið er að fullklára íbúð til sölu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Uppsveiflur og hrun, uppsveiflur og hrun. Þessu verðum við að
    breyta og þessu ætlum við að breyta. Við ætlum að tryggja jafnara framboð
    íbúða og lóða til skemmri tíma og til framtíðar. Íbúðir í takt við þarfir
    og eftirspurn, íbúðir sem venjulegt fólk hefur efni á að kaupa eða leigja.
    Við munum einnig leggja fram uppfærða og nýja byggingarreglugerð á þessu
    þingi. Reglugerðin verður einfölduð úr átján köflum í átta með áherslu á
    skilvirkni, neytendavernd og gæði. Við munum einnig leggja fram breytingar
    á skipulagslögum þar sem ferlar verða styttir og neitunarvaldi vegna
    vaxtamarka eytt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum nú þegar samið um uppbyggingu á allt að 1.400 íbúðum á
    ríkislóðum, lóðum sem flestar hafa lengi staðið auðar. Við höfum þegar
    stigið skref í átt að breytingum á hlutdeildarlánakerfinu sem hefur
    hjálpað fleiri fyrstu kaupendum en áður. Við höfum skrifað undir fyrstu
    uppbyggingarsamningana inn í kerfið. Við höfum einnig eflt almenna
    íbúðakerfið og hækkað stofnframlög til að tryggja uppbyggingu fleiri
    óhagnaðardrifinna leiguíbúða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fram undan eru mikilvægar breytingar á húsaleigulögum þar sem við
    ætlum að banna mánaðarlega vísitölutengingu og breyta líka fyrirkomulagi
    húsaleigutrygginga. Við munum fara í heildarendurskoðun á
    húsnæðisstuðningskerfinu svo það styðji betur við þá sem þurfa á því að
    halda í stað þess að ýta undir frekari hækkanir á húsaleigu. Einnig munum
    við fara í frekari endurskoðun á almenna íbúðakerfinu þar sem við ætlum að
    skoða nýtt kaupleiguform.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðast en ekki síst ætlum við að draga úr vægi verðtryggingar.
    Verðtryggð lán eru eins og spennitreyja í íslensku samfélagi, meinsemd sem
    við höfum þurft að búa við allt of lengi. Starfshópur um endurskoðun
    húsnæðislánakerfisins mun skila af sér niðurstöðu á yfirstandandi þingi og
    fyrstu skref í að draga úr vægi verðtryggingar verða stigin nú í haust.
    Það er verk að vinna til að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði. Bæði ríki og
    sveitarfélög, fyrirtæki og almenningur verða að ganga í takt í þeirri
    vegferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru landsmenn. Ríkisstjórn Flokks fólksins, Viðreisnar og
    Samfylkingarinnar er ríkisstjórn almannahagsmuna og mun hér eftir sem
    hingað til vinna fyrir fólkið í landinu. — Góðar stundir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>