<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T21:05:24" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 21:11:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T21:05:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Klukkan sex í morgun, áður
    en flest okkar voru komin á fætur, voru sjómenn þegar komnir til vinnu í
    Bolungarvík, fyrsta vaktin mætt í laxeldi á Austfjörðum og bændur víða um
    land byrjaðir á sínum degi. Fáeinum klukkustundum síðar var starfsfólk
    Kerecis á Ísafirði mætt til að þróa íslenskt hugvit sem þróað er og selt
    um allan heim. Sama sagan endurtekur sig í Reykjavík og um allt land þar
    sem fólk vinnur, fjárfestir, framleiðir og byggir upp fyrirtæki. Verðmæti
    verða til fyrst, síðan birtast þau í tölum fjárlagafrumvarpsins. Þess
    vegna vil ég að við spyrjum okkur eftirfarandi spurninga: Hvar verða
    verðmætin til og hvað af þeim kemur til baka, þ.e. heim í hérað? Verðmætin
    verða ekki til í excel-skjölum eða stjórnarráðsskjölum. Þau verða til í
    raunhagkerfinu. Á landsbyggðinni verða þau til í hátæknivæddum
    sjávarútvegi og fiskvinnslu, í laxeldi, landbúnaði og matvælaframleiðslu,
    í ferðaþjónustunni sem selur íslenska náttúru og upplifun til gesta sem
    koma alls staðar að úr heiminum og í orkunni og hugvitinu sem getur skapað
    nýjar atvinnugreinar næstu áratugi. Þannig á það að vera. En
    fjárlagafrumvarp næsta árs gefur því miður ekki nægilega jákvætt svar við
    því hvort þessi verðmætasköpun skili sér til baka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fyrsta dæmið eru samgöngurnar. Kílómetragjaldið
    hækkar um tæp 16%, ekki 5% eins og mörg önnur krónutölugjöld. Fyrir fólk
    sem á kost á almenningssamgöngum er akstur valkostur. En það á ekki við um
    alla. Þegar fólk þarf að aka tugi kílómetra til vinnu, til læknis eða til
    að sækja skóla verður þessi hækkun sérstakur aukakostnaður við búsetu úti
    á landi. Annað dæmi er ferðaþjónustan, sem er orðin ein af
    undirstöðuatvinnugreinum stórs hluta landsbyggðarinnar. Boðað er náttúru-
    og innviðagjald sem á að skila 5 milljörðum kr. án þess að útfærsla liggi
    fyrir, auk breytinga á gistináttaskatti, virðisaukaskatti og áhrifa
    kílómetragjalds á bílaleigur. Heildaráhrif ferðaþjónustu eru 10–11
    milljarðar kr. á næsta ári í grein sem selur stóran hluta þjónustu sinnar
    12–18 mánuði fram í tímann. Skattar sem eru kynntir á hausti og taka gildi
    um áramót; það er enginn fyrirsjáanleiki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þriðja dæmið eru byggðamálin sjálf. Fjárheimildir til byggðamála
    lækka að raunvirði. Sóknaráætlanir landshluta, þar sem heimamenn sjálfir
    hafa áhrif á forgangsröðun, lækka um 400 milljónir. Jöfnun námskostnaðar
    framhaldsskólanema er skert og stuðningur við orkuskipti dregst saman. Ég
    þekki það sjálfur sem bóndi hversu mikilvægt er að hafa stöðugleika. Ég
    veit það líka að stöðugleiki, það er ekki sókn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hinn 29. ágúst var þjóðin spurð hvort hefja
    ætti á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Á stórum hluta
    landsbyggðarinnar var niðurstaðan skýr og í umræðunni vógu spurningar um
    fiskimiðin, landbúnaðinn, orkuna og yfirráðin yfir náttúruauðlindum þungt.
    Þar átti vönduð vinna Bændasamtaka Íslands mikilvægan þátt. Samtökin lögðu
    mikla vinnu í að greina með faglegum hætti hvað möguleg aðild gæti þýtt
    fyrir íslenskan landbúnað, byggðir og fæðuöryggi. Þar var byggt á
    rannsóknum, opinberum gögnum og reynslu annarra ríkja. Sú vinna lagði
    mikilvægan grunn að upplýstri umræðu og hjálpaði fólki að taka afstöðu á
    grundvelli staðreynda en ekki slagorða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En því fylgir líka ábyrgð að vilja ráða sjálf. Við verðum að skapa
    atvinnugreinum skilyrði til að vaxa og dafna og komumst ekki upp með að
    vanrækja innviði, byggðir og atvinnugreinar landsins. Þetta er kjarninn í
    hugsjón Framsóknarflokksins: Vinna, vöxtur, velferð. Við viljum að þeir
    sem framleiða matvæli á Íslandi geti horft lengra en til næsta árs og fái
    raunverulegan stuðning til nýliðunar og kynslóðaskipta. Við viljum efla
    sóknaráætlanir landshluta því að ákvörðunarvald á að vera eins nálægt
    fólkinu og kostur er. Og við viljum að atvinnulífið um allt land búi við
    þann fyrirsjáanleika sem þarf til að fjárfesta, ráða fólk og skapa ný
    verðmæti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Stór hluti verðmæta þjóðarinnar verður til á
    landsbyggðinni. Þessi verðmæti verða að skila sér til baka og sjást t.d. í
    vegakerfi, skólum, heilbrigðisþjónustu og þeim tækifærum sem fólk hefur
    til að byggja upp sína framtíð um allt land. Svo einfalt er það. — Áfram
    Ísland.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>