<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T10:33:59" skst="DMK" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 10:45:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T10:33:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027.
    Frumvarpið byggir á grunni fjármálaáætlunar fyrir árin 2027–2031 sem
    Alþingi samþykkti í júní. Óhætt er að segja að það marki tímamót á þeirri
    vegferð sem ríkisstjórnin ákvað að hefja strax við upphaf kjörtímabilsins
    — að ná jafnvægi í ríkisfjármálum með hallalausum fjárlögum. Loks er okkur
    að takast að binda enda á langvinnan hallarekstur ríkissjóðs og í fyrsta
    sinn í nær áratug er gert ráð fyrir jákvæðri afkomu af rekstri hans. Þetta
    er mikilvægur áfangi en alls ekki endastöð. Verkefnið sem tekur við er að
    halda jafnvægi, bæta bæði afkomu og lánsfjárjöfnuð ríkissjóðs enn frekar
    og skapa skilyrði fyrir því að skuldahlutfall ríkisins taki að lækka á
    komandi árum. Það er hins vegar ekki nóg að afgreiða hallalaus fjárlög á
    Alþingi. Það verður að fylgja því fast eftir að rekstur ríkisins verði í
    rauninni hallalaus þegar árið verður gert upp. Fjárlögin verða að vera
    raunsæ. Halda þarf fast í taumana. Reynslan segir okkur að taumhaldið
    hefur nær alla tíð gengið erfiðlega og hér verður að gera bragarbót. Allir
    ráðherrar og forstöðumenn ríkisstofnana bera ábyrgð á að halda fjárútlátum
    innan heimilda. Þá ábyrgð verða þeir að taka alvarlega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Stöðugleiki næst ekki án jafnvægis. Hallalaus fjárlög
    draga úr lánsfjárþörf ríkissjóðs, styðja við peningastefnu Seðlabankans og
    skapa traustar forsendur fyrir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Það er
    eitt brýnasta hagsmunamál heimila og fyrirtækja í landinu. Náist árangur
    þar hríslast hann um allt hagkerfið. Jafnvægi í ríkisrekstrinum er líka
    forsenda þess að geta veitt góða opinbera þjónustu. Þegar tekjur og
    útgjöld eru í jafnvægi skapast svigrúm til að standa undir
    velferðarþjónustu, fjárfesta í innviðum og mæta óvæntum áföllum án þess að
    reikningnum sé velt yfir á komandi kynslóðir. Áherslurnar eru skýrar:
    hóflegur útgjaldavöxtur, traustir tekjustofnar, einfaldari og skilvirkari
    ríkisrekstur og skýr forgangsröðun í þágu verðmætasköpunar, velferðar og
    öryggis.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Undirstöður íslensks efnahagslífs eru traustar.
    Kaupmáttur hefur aukist hjá öllum tekjuhópum og atvinnuþátttaka er mikil.
    Erlend staða þjóðarbúsins er sterk og skuldir hins opinbera eru hóflegar í
    alþjóðlegum samanburði. Hagvöxtur hefur á hinn bóginn verið hægur um
    þriggja ára skeið. Þróunin á vinnumarkaði er áhyggjuefni. Þjóðhagsspá
    Seðlabanka Íslands, sem frumvarpið byggir á, gerir ráð fyrir 1,6% hagvexti
    á þessu ári og 1,8% hagvexti á því næsta. Verðbólga er enn of mikil og
    þrálátari en vonir stóðu til. Hið jákvæða er þó að mikilvægir
    undirliggjandi þættir hafa þróast í rétta átt. Verðhækkanir eru ekki jafn
    víðtækar og áður. Launaskrið hefur minnkað og aukið framboð húsnæðis hefur
    dregið úr verðhækkunum á íbúðamarkaði. Undirliggjandi verðbólga er
    talsvert minni en mæld verðbólga. Þjóðhagsspáin gerir ráð fyrir að
    verðbólga taki að lækka í upphafi næsta árs og verði að meðaltali 3,6%
    árið 2027. Ef rétt er haldið á spilum geta vextir lækkað í sama takti í
    kjölfarið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Ríkissjóður hefur verið rekinn samfellt með halla frá
    árinu 2019. Samanlagður halli áranna 2019–2026 er áætlaður 866 milljarðar
    kr. Á yfirstandandi ári er útlit fyrir 67,5 milljarða halla, eða 1,3% af
    vergri landsframleiðslu. Nú verður þeirri þróun snúið við. Á árinu 2027 er
    gert ráð fyrir tæplega 5 milljarða kr. afgangi sem samsvarar 0,1% af
    vergri landsframleiðslu en afkomubatinn milli ára nemur rúmlega 72
    milljörðum kr. Undirliggjandi rekstur ríkissjóðs styrkist jafnframt
    verulega. Frumjöfnuður, þ.e. afkoma án vaxtatekna og vaxtagjalda, verður
    samkvæmt frumvarpinu jákvæður um 99 milljarða kr., eða 1,8% af vergri
    landsframleiðslu. Vaxtagjöld ríkisins eru áætluð um 155 milljarðar kr. á
    næsta ári. Um þriðjung þeirra má rekja til verðbóta verðtryggðra lána.
    Þung vaxtabyrði ríkissjóðs undirstrikar hvers vegna það skiptir máli að
    stöðva skuldasöfnun, ná verðbólgu niður og draga úr vægi verðtryggingar í
    hagkerfinu. Þegar tekst að ná vaxtabyrðinni niður svo um munar léttir það
    á ríkissjóði og skapar svigrúm til góðra verka. Skuldir ríkissjóðs,
    samkvæmt mælikvarða skuldareglu laga um opinber fjármál, verða um 2.100
    milljarðar kr. í lok næsta árs, eða tæplega 38% af vergri
    landsframleiðslu. Hlutfallið helst því nær óbreytt milli ára. Til þess að
    það lækki þarf að tryggja afgang af rekstri ríkissjóðs og bæta
    lánsfjárjöfnuð á komandi árum. Með þessu frumvarpi er lagður traustur
    grunnur að því verkefni. Fjárlagafrumvarpið uppfyllir skilyrði
    stöðugleikareglunnar og gott betur. Reglan heimilar að hámarki 2% raunvöxt
    tiltekinna útgjalda en samkvæmt forsendum frumvarpsins er raunvöxturinn
    neikvæður um 1,1%. Það sýnir að hallalaus fjárlög nást ekki án þess að
    útgjaldavöxtur sé haminn umfram það sem hámark reglunnar eitt og sér
    krefst.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Á tekjuhlið er markmiðið að styrkja tekjugrunn
    ríkissjóðs, bæta skattskil og fækka undanþágum. Heildartekjur ríkissjóðs á
    þjóðhagsgrunni eru áætlaðar um 1.700 milljarðar kr. árið 2027, eða 30,6%
    af vergri landsframleiðslu. Samanlögð tekjuáhrif helstu skattbreytinga og
    verðlagsuppfærslna eru áætluð um 34 milljarðar kr. árið 2027. Leitast er
    við að dreifa byrðunum með sanngjörnum hætti. Ekki er gripið til þessara
    ráðstafana á tekjuhlið af neinni léttúð heldur eru þær einfaldlega
    nauðsynlegar til að koma jafnvægi á ríkisfjármálin. Horfa verður til þess
    að tekjur ríkissjóðs standi undir þjónustu sem við hvorki viljum né getum
    verið án. Traustir tekjustofnar og öflug grunnþjónusta haldast hönd í
    hönd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Í þessu frumvarpi er ekki lagður til flatur niðurskurður.
    Heildarútgjöld málefnasviða eru áætluð 1.765 millj. kr. árið 2027. Það er
    um 80 milljarða kr. aukning frá fjárlögum fyrra árs en þar af má rekja um
    60 milljarða til launa-, gengis- og verðlagsbreytinga. Að þeim frátöldum
    aukast útgjöldin um 20 milljarða, eða 1,2% af landsframleiðslu.
    Ráðstafanir til að draga úr útgjaldavexti nema alls um 44 milljörðum kr.
    þar af nemur almennt aðhald tæpum 5 milljörðum kr., fækkun stöðugilda hjá
    ríkinu um 1% skilar rúmum 3 milljörðum og sértækar ráðstafanir rúmum 36
    milljörðum. Fjárveitingar til framkvæmda eru færðar að raunverulegum
    framkvæmdahraða og ónýttar heimildir fyrri ára nýttar áður en nýjar
    heimildir eru veittar. Þrátt fyrir aðhald er skapað svigrúm fyrir ný og
    aukin verkefni sem nema tæpum 29 milljörðum kr. Forgangsröðunin er skýr.
    Framlög til félags-, húsnæðis- og tryggingamála og til heilbrigðismála
    aukast mest. Við höldum áfram að einfalda og bæta ríkisreksturinn.
    Sameining stofnana dregur úr tvíverknaði og gerir okkur kleift að nýta
    sérþekkingu og stoðþjónustu betur. Markmiðið er einfalt: Betri þjónusta
    fyrir minna fé.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Frumvarpið sem hér er lagt fram sýnir að ábyrg
    ríkisfjármál og öflug velferðarþjónusta eru ekki andstæður. Til lengri
    tíma getur ekki annað þrifist án hins. Við stöðvum hallarekstur sem varað
    hefur allar götur frá árinu 2019. Við bætum afkomu ríkissjóðs um rúmlega
    72 milljarða kr. milli ára. Við beitum bæði tekju- og gjaldahliðinni og
    sýnum það aðhald sem þarf til að verðbólga og vextir geti lækkað. Um leið
    verjum við grunnstoðir og grunnþjónustu og aukum fjárframlög til
    heilbrigðismála, almannatrygginga, barna, menntunar og samfélagslegs
    öryggis. Það er hvorki auðvelt né einfalt að ná þessari niðurstöðu. Hún er
    byggð á mörgum og markvissum aðgerðum, aga í framkvæmd og vilja til að
    forgangsraða. Árangurinn verður heldur ekki sjálfgefinn. Tekjuráðstafanir
    og hagræðing þurfa að skila því sem að er stefnt og rekstur ríkisins þarf
    að haldast innan fjárheimilda. Leiðin sem við erum að fara er alveg skýr.
    Með jafnvægi í ríkisfjármálum byggjum við upp viðnámsþrótt, drögum úr
    vaxtabyrði framtíðarkynslóða og sköpum svigrúm svo áfram megi bæta
    lífskjör og opinbera þjónustu. Við ætlum ekki að velta vandanum á undan
    okkur heldur taka á honum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Ég legg til að frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027
    verði vísað til 2. umræðu og hv. fjárlaganefndar eftir þessa
    umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>