<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T10:45:50" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 10:48:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T10:45:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og mér
    fannst margt mjög gott sem kom fram í henni. En það fer ekki alveg saman
    hljóð og mynd. Hæstv. fjármálaráðherra var ekki að byrja í gær.
    Ríkisstjórnin er búin að í rauninni framkvæma núna tvenn fjárlög og er
    núna komin með sín þriðju. Hæstv. ráðherra bendir réttilega á að hallinn á
    þessu ári verður 67 milljarðar. Hann stóð hérna og sagði: Hallinn verður
    28, þetta eru ný og betri vinnubrögð. Hann sagði svo alla hlutina sem hann
    sagði, hann sagði: Hallinn verður 28 milljarðar, loksins er komið
    alvörufólk sem kann til verka. En það er ekki bara að hallinn tvöfaldist
    og rúmlega það heldur versnar lánsfjárjöfnuðurinn um 50 milljarða kr. Hví
    skyldum við trúa núna hæstv. ráðherra þegar hann talar um aga í
    ríkisrekstri þegar við sjáum hver staðan er í ríkisfjármálunum núna? Í
    ofanálag segir hæstv. ráðherra að mikilvægt sé að efla hagvöxt. Telur
    hæstv. ráðherra að leiðin til að efla hagvöxt sé að fara í þessar
    gríðarlega miklu skattahækkanir sem þessi ríkisstjórn hefur farið í? Hvar
    hefur það virkað, virðulegi forseti, að ná fram auknum hagvexti með því að
    stórhækka skatta á fyrirtæki og fólk?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verðbólgan er stóra málið. Til þess var ríkisstjórnin kosin. Hver
    trúir því að hækkun skatta, sérstaklega krónutöluskatta, og það að safna
    skuldum eins og núverandi ríkisstjórn er að gera og sækja fram á
    lánamarkaðinn í þeim mæli að það getur ekki annað heldur en ýtt undir
    vaxtahækkanir — hvernig fer þetta saman, virðulegur forseti? Ég vildi
    gjarnan fá svör við þessum þremur spurningum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>