<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T10:48:08" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 10:50:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T10:48:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    spurningarnar. Eins og kom fram í ræðu minni þá er mjög mikilvægt að við
    náum betri aga í ríkisfjármálum. Nú veit hv. þingmaður að þetta hefur
    verið langvarandi vandamál. Ég vil samt taka fram að þau frávik sem hv.
    þingmaður nefnir varðandi bæði hallann 2026 og lánsfjárjöfnuðinn, þau snúa
    varðandi hallann að vaxtakostnaði sem er í eðli sínu bara fall af
    verðbólgu. Það er gert ráð fyrir einhverri verðbólgu og fyrir hvert
    prósentustig eykst hallinn um í kringum 10 milljarða. Síðan snýr hin
    skýringin að kerfum sem við stýrum í sjálfu sér einingaverðunum í en ekki
    magninu. Þetta eru þá liðir innan sjúkratrygginga, ásókn í ákveðnar
    tegundir aðgerða í heilbrigðiskerfinu og annað slíkt þar sem umfangið
    ræðst raunverulega af eftirspurn en ekki ákvörðun Alþingis. Við höfum í
    þessu fjárlagafrumvarpi tekið sérstaklega til þessara liða og endurskoðað
    áætlanir þannig að þetta á ekki að þurfa að gerast aftur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi hagvöxt þá held ég að allir hér séu sammála um það að
    grundvallaratriðið er að við náum niður verðbólgu og vöxtum. Það myndi
    verða stærsta vítamínsprautan inn í hagkerfið. Ég hef tekið um þetta
    umræðu nokkrum sinnum áður. Með hvaða hætti virka tæki Seðlabankans til að
    hægja á hagkerfinu og ná niður verðbólgu? Þau beinlínis hækka kostnað.
    Þess vegna er það að jafnaði þannig að ríkisfjármálin þurfa að spila með
    og stuðla að sambærilegu aðhaldi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil bara að lokum segja að það er allt í lagi að tala um
    skattahækkanir, auðvitað eru skattar að hækka en þeir eru hvergi nærri í
    einhverju sögulegu hámarki. <ns:bjalla/> Hlutfall ríkisins í vergri
    landsframleiðslu er núna lægra en það hefur lengi verið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>