<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T10:50:37" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 10:52:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T10:50:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en hér
    talaði maður sem er búinn að gefast upp. Það fer ekki fram hjá neinum að
    þessi ríkisstjórn er búin að gefast upp. Það að telja það upp af hverju
    hallinn hafi aukist er engin lausn. Það liggur alveg fyrir að við þekkjum
    hver verkefnin eru og það að nefna að einhvern tímann hafi verið hærri
    skattar — þessi ríkisstjórn var kosin út á það að hækka ekki skatta á
    venjulegt fólk. Hvað er venjulegt fólk, hæstv. ráðherra? Ég fer yfir allar
    skattahækkanirnar og ég finn ekki þetta venjulega fólk því að ég hélt að
    það væri venjulegt fólk sem borgaði tekjuskatt, keyrði bíla. En samkvæmt
    skilgreiningu hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni er það ekki svo.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég spurði líka, af því að hæstv. ráðherra nefndi það
    ekki:<ns:bjalla/> Hvernig fer það saman að auka hagvöxt og hækka skatta á
    fyrirtæki og landsmenn? Hvernig fer það saman að lækka verðbólgu og hækka
    skatta, <ns:bjalla/> sérstaklega krónutöluskatta, og sækja svona hart á
    lánamarkaðinn eins og ríkisstjórnin gerir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>