<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T10:52:15" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 10:52:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T10:52:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir síðari
    spurninguna. Ég taldi mig nú að vísu hafa svarað henni þegar ég fór yfir
    hvaða áhrif vaxtaákvarðanir og önnur stýritæki Seðlabankans hafa á
    eftirspurn í hagkerfinu. Það hefur verið markmið Seðlabankans að draga úr
    þenslu og það gerir hann raunverulega með því bara að hækka kostnað
    fyrirtækja og heimila og nákvæmlega hvernig hv. þingmaður gat ekki séð
    þetta sem svar get ég ekki skilið. Ég er að sjálfsögðu ekki búinn að
    gefast upp, þvert á móti. Ég veit ekki betur en að þetta séu fyrstu
    fjárlögin frá 2019 sem eru með afgangi þannig að ef einhver gafst upp þá
    var það einhver annar en ég.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>