<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T10:53:13" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 10:55:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T10:53:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að leiða þetta frumvarp hér
    fram fyrir þingið. Stjórnarliðar telja það stórfrétt að nú sjái fram á
    hallalaus fjárlög. Ég minni á að á yfirstandandi ári hafa útgjöld ríkisins
    hækkað um meira en 30 milljarða umfram það sem áætlað var, þau hafa hækkað
    meira en 30 milljarða umfram það sem ríkisstjórnin boðaði þegar fjárlög
    þessa árs voru kynnt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Agi í framkvæmd fjárlaga. Hæstv. ráðherra er tíðrætt um aga í
    framkvæmd fjárlaga. Er þetta agi þegar útgjöldin vaxa langt umfram það sem
    ríkisstjórnin áætlar? Við hverju má búast á næsta ári þegar hæstv.
    ráðherra boðar hallalaus fjárlög og afgang, sem er nú reyndar vel innan
    skekkjumarka, 5 milljarðar? Við hverju má búast þegar þau ráða ekki betur
    við það en þetta? Eina lausn þessarar ríkisstjórnar er að hækka skatta.
    Það er þeirra eina úrræði vegna þess að ef litið er á sparnaðaráform
    ríkisstjórnar þá eru þau afskaplega rýr, 44 milljarðar, þar af töluvert
    margir milljarðar, ég held yfir 10, þar sem er gengið á uppsafnaðar
    fjárheimildir. Það er í raun eitthvað sem þú setur í sparibaukinn og ætlar
    að kaupa eldavél, tæmir svo sparibaukinn og sleppir því að kaupa þér
    eldavélina og kaupir þér einhvern gasofn. Þetta er svipað. Er þetta
    sparnaðurinn? Ríkisstarfsmenn, 1%. Eru menn búnir að ná því, 1%? Það eru
    200 manns. Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað síðustu ár um mörg hundruð á
    hverju einasta ári í fjöldamörg ár. Þetta er hænuskref að mínu mati,
    hænuskref. Ríkisstjórninni er ekki alvara með að spara og henni er ekki
    alvara með að sýna aga í framkvæmd fjárlaga að þessu upptöldu. Þess vegna
    spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Er ríkisstjórninni alvara með því að
    stefna að hallalausum fjárlögum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>