<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:00:26" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:01:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:00:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir síðari
    spurninguna. Nú er það raunverulega þannig að hv. þingmaður getur flett
    upp umfangi aga í fjárlögum ríkisins aftur í tímann og gögnin sýna að
    fullyrðing hans er einfaldlega ekki rétt. Þessi fjárlög eru þau fjárlög
    sem hafa kynnt mestan aga núna um margra ára skeið og um þetta er
    raunverulega ekkert hægt að deila því tölurnar liggja fyrir. Ég tek hins
    vegar undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að Alþingi taki það
    alvarlega að búa ríkisrekstrinum ramma sem hægt er að beita aga á. Ég tek
    þess vegna alveg undir með hv. þingmanni að undanskildir liðir eru erfiðir
    en það er líka þannig að við getum ekki annars vegar <ns:bjalla/> kvartað
    yfir umfangi þeirra og hins vegar verið á móti því að þjónustugjöld séu
    hækkuð af því að hluti af tilgangi þeirra er að endurheimta kostnað og
    draga á ákveðinn hátt úr eftirspurn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>