<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:01:58" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:04:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:01:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Við erum byrjuð á fjárlagaumræðunni, umræðu um
    fjárlagafrumvarpið fyrir 2027. Það sem vekur sérstaka athygli mína eru
    krónutöluhækkanir upp á 5,2%, verðlagsforsendur 5,2%. Það eru engin merki
    gefin um það að menn ætli að elta verðbólgumarkmið Seðlabankans í þessu
    frumvarpi. Nei, það á bara að hækka krónutölugjöldin um 5,2% sem er áætluð
    verðbólga þessa árs. Það er náttúrlega með hreinum ólíkindum að standa
    svona að málum. Við höfum ekki séð þetta áður. Mig langar að spyrja hæstv.
    ráðherra um nákvæmlega þetta atriði. Af hverju er þessi lausung viðhöfð
    varðandi verðlagsforsendur, 5,2% sett inn í töluleg markmið í frumvarpinu
    en ekki lögð meiri áhersla á forsendur Seðlabanka Íslands um
    verðbólgumarkmið? Þetta er lykilatriðið í öllu. Hvaða skilaboð eru þetta
    til sveitarfélaganna sem eru að fara í sína fjárhagsáætlanagerð þessar
    vikurnar? Eiga þau að fara að setja líka 5,2% hjá sér? Á atvinnulífið,
    ASÍ, SA, vinnumarkaðurinn, að gera ráð fyrir þessu í sínum áætlunum á
    tímum þar sem menn vilja margir horfa til þjóðarsáttar eins og í febrúar
    1990? Það eru engin merki gefin um það í þessu frumvarpi að það eigi að ná
    einhverjum slíkum markmiðum, að lækka verðbólgu og vaxtastigið í landinu,
    sem er höfuðmarkmið þessarar ríkisstjórnar og út á það var hún kosin.
    Þetta er algjört lykilatriði og ég vil fá skýr svör um þetta: Hvernig
    eigum við að fara inn í þennan vetur varðandi sveitarfélögin? Eiga þau
    bara að fara í sína fjárhagsáætlanagerð eftir þessu markmiði
    ríkisstjórnarinnar? Eiga komandi kjarasamningar að vera gerðir á sömu
    forsendum?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er nefnilega ákveðið skipbrot hjá þessari ríkisstjórn,
    <ns:bjalla/> þessi markmið sem við sjáum varðandi verðbólgu og vaxtastigið
    í landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>