<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:04:17" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:06:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:04:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir
    spurninguna. Nú höfum við auðvitað rætt það hér í þessum sal, og það kom
    raunar líka fram í svari mínu til hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
    hvernig ákvarðanir Seðlabankans hafa áhrif á eftirspurn og hvað vinnur með
    og gegn vinnu Seðlabankans. Sú fullyrðing hv. þingmanns að krónutölugjöld
    fylgi ekki verðlagi er nú, held ég, ekki alveg rétt og hv. þingmaður ætti
    að kynna sér betur hvernig þær ákvarðanir hafa verið teknar í gegnum
    tíðina. Það er hins vegar þannig að ef við ætlum að hafa krónutölugjöld,
    sem er auðvitað ákvörðun þeirra sem í þessum sal sitja, þá er skrýtið að
    leyfa þeim að rýrna með verðbólgu af því að það er þá raunverulega
    ákvörðun sem gengur gegn upprunalegri ákvörðun um að leggja þau
    á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil svo í þessu samhengi minna hv. þingmenn á að byggja
    fullyrðingar á gögnum. Áhrif krónutölugjalda á verðlag á þessu ári eru
    hverfandi. Meginástæða hárrar verðbólgu er í raun bara tveir liðir í
    vísitölunni; annars vegar flugfargjöld og hins vegar eldsneyti. Það eru
    liðirnir sem hafa lyft upp verðbólgu á þessu ári á meðan áhrif ríkisins
    merkjast raunverulega ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>