<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:06:14" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:07:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:06:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þá kemur nefnilega önnur spurning eftir þetta svar
    hæstv. ráðherra: Eiga sveitarfélögin í landinu að fara sömu leið og
    ríkissjóður og reikna með 5,2% á sína tekjustofna? Er það málið? Er það
    nálgunin sem fjármálaráðuneytið og ríkisstjórnin eru að boða í þessu
    fjárlagafrumvarpi, um hvernig eigi að standa að ríkisfjármálunum á næsta
    ári? Þetta er nefnilega mjög stór spurning. Stýrivextir hafa farið
    hækkandi, það er búið að hækka þá núna þrisvar um 75 punkta á undanförnum
    mánuðum. Ríkisstjórnin tók við góðu búi, tók nefnilega við góðum fjárlögum
    sem voru samþykkt í nóvember 2024. Stýrivextir voru farnir að lækka það
    haust og héldu áfram að lækka fyrstu fimm mánuðina. Síðan hefur bara
    hallað undan fæti. Það hefur nefnilega hallað undan fæti og við þurfum að
    halda því til haga í umræðunni um fjárlögin hvernig ríkisfjármálin,
    stýrivextir og hvernig hlutirnir hafa verið að þróast. <ns:bjalla/> Þetta
    er nefnilega lykilatriði máls.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>