<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:07:32" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:08:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:07:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir
    spurninguna. Það er auðvitað sveitarfélaganna sjálfra að ákveða eigin
    verðskrár. Varðandi þær fullyrðingar sem komu fram í máli hv. þingmanns um
    þróun og einhvers konar orsakasamhengi milli fjárlaga síðustu
    ríkisstjórnar og hagþróunar á tímabilinu þá vil ég aftur undirstrika það
    sem ég var rétt áðan að segja: Það eru tveir liðir sem skýra hækkun
    verðbólgu á þessu ári að langsamlega mestu leyti. Það eru flugfargjöld og
    það er eldsneytiskostnaður. Tveir liðir. Hvorugur er þjónusta sem ríkið
    veitir og báðir eru fall af heimsmarkaðsverðþróun. Þetta kemur auðvitað á
    óheppilegum tíma en menn verða að kynna sér málin áður en þeir búa til
    orsakasamhengi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>