<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:08:43" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:11:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:08:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hallalaus fjárlög og markmið ríkisstjórnar um að ná
    þeim fram hér með þessu fjárlagafrumvarpi eru mjög jákvæð og við tökum
    undir þau markmið. En hæstv. ráðherra segir að þetta séu fyrstu hallalausu
    fjárlögin frá árinu 2019 og það er alveg rétt. En hæstv. ráðherra skautar
    hins vegar algerlega fram hjá því hvað gerðist á þessum árum sem varð til
    þess að uppsafnaður halli er með þeim hætti sem hann er í dag, líkt og
    Covid og jarðeldar og að hér voru keyptar upp íbúðir hjá heilu
    sveitarfélagi. Núna í ár stefnir í tuga milljarða hallarekstur en engin
    áföll hafa dunið á ríkissjóði í líkingu við það sem gerðist í tengslum við
    Covid og jarðeldana. Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á 4,7 milljarða
    afgang á næsta ári en reynslan á árinu í ár sýnir hversu brothætt sú
    niðurstaða getur orðið. Afkoma þessa árs stefnir í 39 milljarða kr. lakari
    árangur en samþykkt fjárlög gerðu ráð fyrir. Fjármálaráðuneytið sjálft
    hefur viðurkennt áhættuna og sýnt að í svartsýnustu sviðsmyndinni, ef allt
    fer á versta veg, sem við auðvitað bindum vonir við að gerist ekki, getur
    afgangurinn á næsta ári breyst í um 65 milljarða kr. halla, þ.e. ef
    hagvöxtur verður minni, atvinnuleysi meira og verðbólguvextir hærri en
    gert er ráð fyrir. Við vitum líka að óvæntir atburðir geta kallað á mikil
    útgjöld með litlum fyrirvara þannig að 4 milljarðar eru ekki mikið
    öryggissvigrúm í ríkisrekstri af þessari stærð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Til hvaða aðgerða eða
    viðbragða ætlar ríkisstjórnin að grípa ef eitthvað óvænt kemur upp á næsta
    ári, ekkert ósvipað því sem gerist núna í ár? Verður brugðist við með
    frekari skattahækkunum, niðurskurði í þjónustu eða aukinni lántöku? Hæstv.
    ráðherra talar líka um aga í ríkisfjármálum. Það er ekki gert ráð fyrir
    neinu aukafjárframlagi <ns:bjalla/> varðandi framkvæmdir í Fljótagöngum og
    mér heyrðist það á ræðum hér í gærkvöldi að það ætti að fara að bora göng.
    Til þess þarf aukið fjármagn. Er agi í því að kalla eftir fjárauka til
    þess að mæta þeirri aðgerð þegar ekki er gert ráð fyrir því núna í
    fjárlögum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>