<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:11:10" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:13:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:11:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurningarnar.
    Hv. þingmönnum verður tíðrætt um áföll og ég hef farið mjög varlega í að
    gera lítið úr því. Það er samt ljóst eftir á að hyggja að umfang
    stuðningsaðgerða og hallareksturs ríkisins sem gripið var til vegna þeirra
    var of mikið og stóð of lengi og varð á endanum ástæðan fyrir þeirri
    viðvarandi verðbólgu sem við búum við. Það er mjög miður en af því þurfum
    við að draga lærdóm.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður kemur og segir: Engin áföll á þessu ári. En þrátt
    fyrir allt er stríð í Miðausturlöndum sem hefur áhrif á eldsneytisverð,
    það er fyrst og fremst ástæðan fyrir hækkandi verðbólgu sem veldur því að
    verðbætur reynast hærri en gert var ráð fyrir og það stríð sá enginn
    fyrir. En til hvaða viðbragða á að grípa? Það fer eftir því hvaða áfall
    dynur á. Verði áfallið sjokk sem leiðir til verulegs atvinnuleysis þá þarf
    að grípa til stuðnings af hálfu hins opinbera til að jafna það út. Sé
    áfallið einhvers annars eðlis þá verður gripið til annarra
    aðgerða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Fljótagöng sérstaklega þá vil ég benda á að ríkisstjórnin
    hefur verið mjög skýr með að framkvæmd Fljótaganga verður á hendi
    innviðafélags og það verður þá eiginfjárframlag til innviðafélags sem mun
    standa straum af kostnaði þess vegna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>