<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:13:18" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:14:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:13:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það kemur
    skýrt fram að til að hægt sé að ráðast í aðgerð sem er ekki arðbær, líkt
    og Fljótagöng, þurfi að koma framlag frá ríkissjóði, sem er ekki gert ráð
    fyrir hér, svo við höfum það á hreinu. En í ljósi svara hæstv. ráðherra þá
    langar mig að spyrja: Af hverju gerði ríkisstjórnin þá ekki neitt varðandi
    fjárauka árið 2025?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin er að kynna sér mikilvægt skref í baráttunni við
    verðbólgu og það er jákvætt. En þegar við erum að skoða hvað gerist
    raunverulega í daglegu lífi fólks þá er erfitt að sjá hvernig sú mynd á að
    ganga upp. Opinber gjöld eiga að hækka um 5,2%, meira en tvöfalt
    verðbólgumarkmið Seðlabankans, og ríkið gengur á undan með góðu fordæmi.
    Þannig að maður er að velta fyrir sér hvort það sé að gefa sveitarfélögum
    fordæmi með þessari hækkun. Kílómetragjaldið er að hækka um 16%,
    breytingar á persónuafslætti á skattþrepum leiða til þess að einstaklingar
    hér í landinu eru að greiða 3,1 milljörðum meira í tekjuskatt en ella.
    Barnabætur standa í stað í krónutölu og rýrna að raunvirði og
    vaxtabótakerfið er skert og dýrara verður fyrir fólk að byggja eða
    endurbæta húsnæði vegna minni endurgreiðslu virðisaukaskatts. Ég get
    haldið áfram að telja hér <ns:bjalla/> en tíminn heimilar mér það ekki. En
    ég vil spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Hvernig samræmist það markmiðum um
    lægri verðbólgu og vexti að hækka opinber gjöld langt umfram
    verðbólgumarkmið og auka um leið beina útgjaldabyrði heimilanna? Og telur
    hæstv. fjármálaráðherra þetta vera líklegt til þess að liðka fyrir
    kjarasamningaviðræðum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>