<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:14:52" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:16:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:14:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurningarnar.
    Ég hef í nokkrum svörum farið yfir hvers vegna hækkanir opinberra gjalda
    eru iðulega ekki liður sem seðlabankar horfa á, horfa í gegnum einmitt
    vegna þess að þær toga í sömu átt og aðgerðir Seðlabankans. Þegar
    Seðlabankinn hækkar vexti er hann að hækka kostnað heimila og fyrirtækja
    til að draga úr eftirspurn og allar þær greiningar sem liggja fyrir, m.a.
    greiningar Hagstofunnar sem heldur úti sérstakri vísitölu til að mæla
    áhrif ákvarðana hins opinbera á verðlag, styðja ekki þann málflutning sem
    hér kemur fram. Það eru tveir liðir sem hafa dregið áfram verðbólguna. Það
    eru flugfargjöld og eldsneyti. Áhrif ríkisins mælast vart. Við erum í
    uppbyggilegu samtali við aðila vinnumarkaðarins. Ýmislegt er þar til
    umræðu. Eðli málsins samkvæmt get ég ekki tjáð mig um hvað það er sem þar
    er undir <ns:bjalla/> en ég vona að það leiði til farsællar niðurstöðu á
    komandi dögum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>