<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:16:19" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:26:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:16:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í þessum stól á síðasta kjörtímabili stóð
    stjórnmálamaður sem sagði: Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að ná niður
    verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Og hvar skyldi sá
    stjórnmálamaður vera núna? Jú, sá stjórnmálamaður er hæstv.
    forsætisráðherra. Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að ná niður verðbólgu
    þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Hvað varð um þessa speki? Ég sagði hér
    áðan, virðulegur forseti, að hér talaði um fjármálaráðherra sem væri búinn
    að gefast upp. Hæstv. fjármálaráðherra er í ríkisstjórn með hæstv.
    forsætisráðherra sem sagði: Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að halda
    aftur af verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Og hér kemur hæstv.
    ráðherra og hann bendir bara á Seðlabankann. Hann bendir á áföll sem eru
    pínulítil, agnarsmá í samhengi við það sem hæstv. ráðherra og
    stjórnarliðar hafa gagnrýnt síðustu ríkisstjórn fyrir. Agnarsmá. Trúðu
    mér, virðulegi forseti, þær ríkisstjórnir sem sátu hefðu gjarnan viljað
    skipta á þessum áföllum, Covid og Reykjaneseldum. Þegar Covid var ekki nóg
    þá fengum við Reykjaneseldana líka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér kemur hæstv. ráðherra sem er búinn að gefast upp og segir að
    hann geti ekkert gert í þessari verðbólgu, bara ekki neitt, af því að
    flugfarseðlar hafa hækkað. En forsætisráðherra las yfir þingi og þjóð og
    sagði: Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að halda aftur af verðbólgu þá
    verður Seðlabankinn að gera meira. Ýmislegt hefur breyst en ekki þetta því
    að þetta var alveg rétt hjá hæstv. ráðherra, ríkisstjórnir geta gert mikið
    til að halda aftur af verðbólgu. Þessi ríkisstjórn var kosin til að halda
    aftur af verðbólgu. Og þegar þessi ríkisstjórn tók við — og það vita allir
    og hæstv. ráðherra hefur margoft bent á það enda eru það augljósar
    staðreyndir, hann gerði það áðan ágætlega — þá tók hún við góðu búi.
    Vextir voru byrjaðir að lækka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað er búið að gerast síðan þessi hæstv. ríkisstjórn tók við?
    Vextir hafa hækkað og hækkað. Þessi ríkisstjórn er með nýjar hugmyndir sem
    við höfum ekki heyrt áður. Það á að ná fram hagvexti með auknum sköttum og
    gjöldum. Svo ætla menn að lækka verðbólgu með því að hækka skatta og gjöld
    og skuldir. Þessi ríkisstjórn ætlaði að gera allt miklu betur heldur en
    nokkurn tíma hefur sést áður. Hún er að vísu á miðju kjörtímabili sínu,
    framkvæmd fjárlaga er í ólestri og það eru fullkomin ósannindi hjá hæstv.
    ráðherra að tilnefna ekki og fara ekki í gegnum alla þá liði sem hafa
    farið fram úr því það er miklu meira heldur en hæstv. ráðherra hefur
    nefnt. Reyndar er það þannig að það hefur margt hjálpað ríkisstjórninni
    því að tekjurnar hafa verið meiri. En hin ýmsu gjöld hafa hækkað og það er
    ekki bara fjármagnskostnaðurinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra talar um aga og áætlanagerð og breytt vinnubrögð.
    Gæti verið t.d. að áætlanagerðin þegar kemur að heilbrigðismálum hafi ekki
    verið raunhæf eins og með lyfin? Þrátt fyrir öldrun þjóðarinnar gerðu menn
    ekki ráð fyrir neinni aukningu. Sjúkratryggingar eru að fara 12 milljarða
    fram úr áætlun. Gæti verið einhver tenging þarna á milli, að menn hafi
    ekki horft á raunveruleikann þegar þeir gerðu sínar áætlanir?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Forystumenn þessarar ríkisstjórnar lofuðu því
    með eftirminnilegum hætti að það ætti ekki að hækka skatta á venjulegt
    fólk. Er ekki kominn tími til þess að forystumenn ríkisstjórnarinnar fari
    að skilgreina hverjir eru venjulegt fólk? Hvaða fólk er þetta? Ekki eru
    þetta fjölskyldurnar í landinu. Ekki er þetta vinnandi fólk í landinu.
    Ekki er þetta fólk sem þarf á sjúkrahúsþjónustu að halda. Hvað er
    venjulegt fólk? Ekki er þetta fólk sem keyrir bíl. Hvar er þessi hópur,
    þetta venjulega fólk sem þau ætluðu ekki að skattleggja? Þau lofuðu því.
    Hæstv. ríkisstjórn tók við í desember 2024. Árið 2025 urðu tekjur
    ríkissjóðs 60 milljörðum meiri heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir.
    Ríkisstjórnin kom með fjögur fjáraukalög og hér segir hæstv. ráðherra að
    menn hafi ekki gengið nógu hart fram í því að minnka ríkisútgjöld eftir
    Covid. Gerðu þeir eitthvað í því 2025? Nei. 2026 vorum við vöruð við því
    af öllum aðilum að fjárlög þess árs væru ekki raunhæf. Hver er
    niðurstaðan? Þau eru ekki raunhæf. Þau ganga ekki eftir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þau komu með fjármálaáætlun síðasta vor. Þar kemur fjármálaráð sem
    samanstendur af tveimur doktorum í hagfræði og einum master og hefur það
    eina hlutverk að benda á veikleika í fjármálaáætlun. Hvað gerði hæstv.
    ríkisstjórn gagnvart gagnrýni og álitsgerð fjármálaráðs sem gekk út á að
    þetta væri allt of bjartsýnt, þetta væri ekki trúverðugt og myndi ekki slá
    á verðbólguvæntingar vegna þess að menn væru — þrátt fyrir að þeir segðu
    að það væri afkomubati og þeir ætluðu að hafa 1 milljarð í afgang, núna
    eru þeir 4 — að safna skuldum? Sömuleiðis væru ríkisfjármálin ekki
    sjálfbær og það þyrfti að grípa til aðgerða af því að það væri
    forsendubrestur þegar hæstv. ríkisstjórnin fór í þær lagabreytingar sem
    hún gerði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hvað gerði hæstv. ríkisstjórn gagnvart þessu?
    Ekkert. Það var ekkert gert með álitsgerð fjármálaráðs. Nú koma menn með
    þessi fjárlög, segja sömu hlutina og þeir sögðu síðast þegar þeir lögðu
    fram fjárlög. Þetta eru sömu orðin. Gekk það eftir sem hæstv. ríkisstjórn
    sagði síðast? Nei. Við sjáum það í framkvæmd fjárlaga. Eina lausn þessarar
    ríkisstjórnar — og þar eru endalausir möguleikar að því er virðist — er að
    hækka skatta og hækka gjöld. Það sem hún var kosin til, virðulegur
    forseti, var að lækka vexti, það var að lækka verðbólgu. Það er öllum
    ljóst, virðulegur forseti, sem hlustuðu hér á hæstv. ráðherra að þessi
    ríkisstjórn hefur gefist upp á því verkefni. Það eru mjög slæmar fréttir
    fyrir almenning og venjulegt fólk í landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>