<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:27:09" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:28:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:27:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    ræðuna. Hún var í alla staði athyglisverð. Lesi maður í gegnum
    fjárlagafrumvarpsframsöguræður fyrirrennara minna kemur í ljós að það er
    ákveðið stef þar sem kemur fram um skrefin í átt að hallalausum fjárlögum
    og raunar ítrekanir á mikilvægi þeirra: Að ná jákvæðum frumjöfnuði, ná
    afkomunni í plús, sem þessi fjárlög gera, og ná lánsfjárjöfnuði jákvæðum.
    Þetta er röðin sem þessar ákvarðanir eru teknar í. Mér leikur því forvitni
    á að vita, í ljósi þess að verið er að fara nákvæmlega áfram eftir þessu
    handriti, hvað hv. þingmaður hefur fyrir sér þegar hann heldur því fram að
    ríkisstjórnin hafi gefist upp á verkefninu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>