<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:28:30" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:30:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:28:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hvað hef ég fyrir mér í því? Ég hef það fyrir
    mér að ég er með fjárlög fyrir framan mig. Ég var með fjármálaáætlun sem
    við fjölluðum um í vor þar sem komu fram mjög alvarlegar athugasemdir frá
    fjármálaráði. Allir hagaðilar sem komu þar inn tóku undir með
    fjármálaráði. Ég man ekki eftir því að það hafi verið gert áður að menn
    uppfærðu ekki einu sinni fjármálaáætlunina þegar meiri hluti hv.
    fjárlaganefndar kláraði málið. Það var ekkert komið til móts við
    athugasemdir fjármálaráðs, í engu. Síðan sjáum við fjárlögin og við erum á
    nákvæmlega sama stað. Fjármálaráð sagði að við þyrftum að endurskoða
    stöðugleikaregluna vegna þess að það er forsendubrestur, þessar
    lagabreytingar sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir. Fjármálaráð sagði:
    Þið eruð að stefna að ósjálfbærum opinberum fjármálum. Þetta hefur áhrif á
    30% af fjárlögunum. Fjármálaráð sagði: Þetta eru allt of bjartsýnar
    forsendur. Fjármálaráð sagði: Þið eruð ekki að slá á verðbólguvæntingar ef
    þið aukið skuldir svona mikið eins og raun ber vitni. Það er ekkert komið
    til móts við þetta, það var ekki gert þegar fjármálaáætlun var kláruð og
    það er ekki gert núna. Af hverju heldur þú að fjármálaráð sé til,
    virðulegur forseti? Það er til þess að benda hæstv. ríkisstjórn og
    þingheimi á þá galla sem eru til staðar, ekki pólitík heldur faglegar
    athugasemdir. <ns:bjalla/> Ég segi: Ríkisstjórn sem tekur ekkert á þessu,
    svarar þessu ekki einu sinni, sú ríkisstjórn er búin að gefast upp. Svo sé
    ég líka framkvæmd fjárlaga og ýmislegt annað sem bendir til þess að þessi
    ríkisstjórn sé búin að gefast upp.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>