<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T11:30:57" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:32:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:30:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið.
    Sem sagt: Túlkun hv. þingmanns á því hvað það er að gefast upp á
    verkefninu er hvort og með hvaða hætti fjármálaráði var svarað, ekki hvað
    ríkisstjórnin raunverulega gerði. Það finnst mér á margan hátt mjög
    athyglisverð túlkun. Við erum hér og ég var að mæla fyrir fyrstu
    hallalausu fjárlögunum frá 2019. Við erum að ná áfanga nr. 2 í því að ná
    aftur tökum á áralöngum ósjálfbærum rekstri ríkissjóðs og mér finnst þetta
    mjög sérstakt, að taka einhvern veginn söguna fram yfir raunveruleikann er
    að mínu viti mjög sérstök nálgun á lífið. </ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og mig langar til að víkja
    hér smá spurningu að honum sem er, án þess að ég sé að benda á neinn:
    Telur hv. þingmaður að umfang og lengd Covid-aðgerðanna, eftir á að
    hyggja, hafi verið réttlætanleg? </ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>