<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:32:19" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:33:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:32:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Varðandi Covid þá var margt gott gert þar en
    hefði mátt gera margt betur. Sem betur fer hlustuðum við ekki á
    stjórnarflokkana núverandi og gerðum meira, en þeir hvöttu til
    þess.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hæstv. fjármálaráðherra
    var að tala hér niður álitsgerð fjármálaráðs með þeim hætti að það eitt og
    sér er mjög alvarlegt mál. Fjármálaráð sagði, og allir geta kynnt sér
    þetta: Jú, jú, það er jákvætt að reyna að ná hallalausum fjárlögum en það
    er mjög margt annað sem þið verðið að taka tillit til. Mér er til efs að
    nokkurn tímann hafi komið jafn harðorð álitsgerð fjármálaráðs og hér kemur
    hæstv. ráðherra og gerir bara ekkert með þetta. Hann gerir ekkert með
    ósjálfbærnina, menn nálgast það ekki með neinum hætti. Lánsfjárjöfnuðurinn
    — fjármálaráð hafði rangt fyrir sér, þetta er verra en fjármálaráð lagði
    upp með. Menn eru að safna meiri skuldum en fjármálaráð hafði áhyggjur af
    og það er ekkert gert með það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. <ns:bjalla/> Ef ég var ekki sannfærður um
    uppgjöf hæstv. ráðherra fyrir þá tókst honum fullkomlega að sjá til þess
    að það er enginn vafi í mínum huga eftir þessar athugasemdir
    hans.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>