<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:33:53" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:36:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:33:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vil vekja
    athygli hans á því enn fremur að við erum að gera ýmislegt og hann virðist
    ekki taka eftir því að við erum hér að ræða fjárlagafrumvarp sem gerir ráð
    fyrir því að það sé afgangur. Við erum að skila vonandi hallalausum
    fjárlögum og það er einmitt liður í því að ná utan um vandann.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvenær eru menn að hækka skatta og hvenær ekki? Ég vil vekja
    athygli á því að menn hækka skatta um leið og þeir taka ákvarðanir um
    útgjöld. Þegar menn taka ákvörðun um halla, jafnvel svo árum skiptir, sem
    nemur á níunda hundrað milljörðum kr., uppsafnaður halli frá síðustu árum,
    frá árinu 2019, þá eru menn um leið að taka ákvörðun um tekjuöflun því að
    það þarf að stoppa í þetta gat. Það er það sem við erum að gera. Ég vil
    líka vekja athygli hv. þingmanns á því, vegna þess að hann talar um aðhald
    og að ríkisstjórnin sé ekki að gæta að því, að hér er ný tafla sem kemur
    frá þeirri ágætu stofnun, Byggðastofnun, þar sem er greint frá því að á
    árum fyrri ríkisstjórna, tíu ára tímabili, fjölgaði ríkisstarfsmönnum um
    25%. Árið 2025 þá hægði verulega á þeirri fjölgun, það var nánast ekki
    neitt. Það var fyrsta heila ár ríkisstjórnarinnar frá því að hún tók við
    völdum. Þannig að við höfum hér tækifæri og ég vona svo sannarlega að við
    fáum bjartari tón í stjórnarandstöðuna, að hún komi með okkur í lið við að
    ná endum saman því það skiptir máli að við sláum á verðbólguvæntingar, þær
    eru einn liður í því að þrýsta verðbólgunni upp. Það er á ábyrgð allra
    þingmanna að stilla þeim væntingum í hóf og í samræmi við raunveruleikann
    <ns:bjalla/> sem þetta fjárlagafrumvarp boðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>