<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:36:14" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:38:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:36:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég veit
    ekki alveg hvað ég á að segja um það. Það liggur alveg fyrir að það var
    mikill halli hér í Covid eins og í öllum þeim löndum sem við berum okkur
    saman við. En í ofanálag fengum við Reykjaneseldana líka. Mér er til efs
    að nokkur ríkisstjórn hafi fengið annað eins upp í fangið eins og þau
    verkefni og það skýrir svo sannarlega hallann. En sem betur fer stóð
    ríkissjóður það vel að hann þoldi það og þessi ríkisstjórn tekur við góðu
    búi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mig langar kannski að spyrja hv. þingmann um, af því að
    það voru engar beinar spurningar til mín, er í fyrsta lagi: Af hverju
    lofuðu stjórnarflokkarnir því að hækka ekki skatta fyrir kosningar? Af
    hverju lofuðu þeir því? Þeir buðu sig fram til þings og vissu alveg stöðu
    mála. Þeir lofuðu því mjög skýrt að hækka ekki skatta. Af hverju gerðu
    þeir það?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan spyr ég: Telur hv. þingmaður að það sé góð leið til að ná
    niður verðbólgu að auka skuldir verulega, hækka skatta og gjöld verulega,
    um 60 milljarða kr. frá því að þessi ríkisstjórn tók við? Er þetta góð
    leið til að ná niður verðbólgu? Er þetta góð leið til að auka hagvöxt? Það
    eru þessar þrjár spurningar: Af hverju lofuðuð þið því fyrir kosningar að
    hækka ekki skatta og telur hv. þingmaður þetta vera leiðina til að auka
    hagvöxt og leiðina til að minnka verðbólgu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>