<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:38:27" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:39:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:38:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil vekja athygli hv. þingmanns á því að fjölgun
    ríkisstarfsmanna, eins og fram kemur í umræddri töflu Byggðastofnunar, nær
    langt aftur fyrir jarðeldana á Reykjanesi og Covid þannig að við erum ekki
    að tala um þróun hvað varðar fjölgun ríkisstarfsmanna á vakt
    Sjálfstæðisflokksins sem beina afleiðingu af því, ég tel að það sé rétt.
    Síðan er spurt: Er skattahækkun góð leið til þess að ná niður verðbólgu?
    Það er leið til þess ef verðbólgan stafar af því að það er of mikið
    peningamagn í umferð, þá ætti hún að hafa svipuð áhrif og hækkun
    stýrivaxta, þ.e. draga fjármagn út úr veltunni þannig að menn minnki
    spennuna. Það er alveg þekkt leið til þess að minnka verðbólgu auk þess að
    hækka stýrivexti og hækka vexti. En síðan er auðvitað hitt, að þegar
    verðbólgan stafar af innflutningi, t.d. háu hráefnisverði olíu,
    <ns:bjalla/> þá er hækkun stýrivaxta ekki góð leið. Það er einmitt það sem
    ég hef gagnrýnt Seðlabankann fyrir. Menn eigi miklu frekar að hægja á
    þessum kostnaðarauka sem vaxtahækkanir eru.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>