<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:40:02" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:41:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:40:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er bara sjálfsagt að ræða fjölgun
    ríkisstarfsmanna og ég er með skýrslubeiðni t.d. um hvaða áhrif stytting
    vinnuvikunnar hefur og síðan vitum við náttúrlega að með breyttri
    aldurssamsetningu þjóðarinnar hefur reynt m.a. á heilbrigðisstarfsemina,
    þetta er mikilvægt að skoða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. þingmaður svaraði því ekki af hverju þeir
    lofuðu fyrir kosningar að hækka ekki skatta. Núna finnst hv. þingmanni það
    bara gott að hækka krónutöluskatta til að lækka verðbólgu og líka auka
    skuldir til að lækka verðbólgu og auka hagvöxt. Ég get ekki skilið hv.
    þingmann öðruvísi. Öðruvísi mér áður brá. Ég er alveg sannfærður um að það
    lækkar ekki vexti ef ríkissjóður er að sækja lánsfé til að halda sér
    gangandi. Hvernig má það vera, virðulegi forseti, að það lækki vexti og
    verðbólgu þegar ríkissjóður er mjög þurftarfrekur á lánamarkaðnum?
    <ns:bjalla/> Hv. þingmaður er augljóslega ánægður með þetta en hann
    svaraði ekki spurningunni: Af hverju lofuðuð þið fyrir kosningar að hækka
    ekki skatta?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>