<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:41:37" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:43:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:41:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir
    ræðuna en finnst umræðan dálítið stúrin, hvort það sé virkilega ekkert sem
    þingmaðurinn sjái jákvætt í nýframkomnum fjárlögunum sem eru lögð fram
    hallalaus í fyrsta skipti síðan 2019. Uppsafnaður halli á árunum 2019–2026
    er 866 milljarðar, einn þriðji af skuldum ríkisins, ríkissjóðs. Þetta ætti
    að vera gleðiefni. Líka það að vinna á innviðaskuldinni og byggja svo
    hraustlega upp í hjúkrunarheimilum að hinn frægi fráflæðisvandi hafi
    minnkað. Þetta eru bara nokkrar hugmyndir um sólskinsblett í heiði sem
    þingmaðurinn hefði getað staðnæmst við. Og af því að okkar bíður áhugavert
    og skemmtilegt starf í fjárlaganefndinni þá vildi ég fá þingmanninn aðeins
    til að nefna ekki bara löst heldur líka styrkleikana í þessu og hvar
    þingmaðurinn telji fjárlaganefnd helst eiga að drepa niður í störfum sínum
    á næstu vikum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>