<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:43:18" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:45:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:43:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hafði bara ekki hugmynd um að þessi umræða
    ætti að vera einhver skemmtidagskrá. Við erum hér að ræða alvarlega hluti.
    Við erum að ræða stöðu ríkisfjármála. Við erum að ræða efnahagsmálin. Við
    erum að ræða stöðu heimilanna, við erum að ræða stöðu venjulegs fólks. Við
    erum að ræða sömuleiðis hvernig við ætluðum að auka hagvöxt og bæta
    lífskjörin í landinu. Ég bara vissi ekki að þetta væri einhver „stand
    up“-keppni. Auðvitað er fullt jákvætt í fjárlögunum, skárra væri það nú. Á
    tíu mínútum get ég örugglega ekki nefnt það allt saman. En ég er hér að
    vekja athygli á alvöru máls af því að hv. þingmaður og stjórnarliðar koma
    hér og segja: Heyrðu, þetta var 836 milljarða halli. Ég vil spyrja hv.
    þingmann af því að hann er í flokki sem vildi að hallinn yrði meiri,
    Samfylkingin og Viðreisn sögðu að það væri ekki nóg að gert og það ætti að
    setja meiri fjármuni í þetta: Hversu mikill hefði hallinn orðið ef við
    hefðum farið eftir tillögum Samfylkingarinnar og Viðreisnar á sínum tíma?
    Þetta voru Covid og Reykjaneseldar en stjórnarandstaðan var alveg skýr:
    Þið gerið ekki nóg, þið verðið að gera meira, setja meiri peninga. Hefði
    hallinn verið 900 milljarðar, 1.000 milljarðar? Hvað hefði hann verið
    mikill?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Spurningin er hvort það sé eitthvað jákvætt í fjárlögunum og
    skárra væri það nú. En við verðum að horfa á hlutina eins og þeir eru og
    staðan er mjög alvarleg þegar við sjáum þessi fjárlög. Hv. þingmaður
    þekkir mjög vel að það hefur ekkert verið gert með tillögu fjármálaráðs.
    <ns:bjalla/> Það var ekki um það fjallað í meirihlutaáliti hv.
    fjárlaganefndar og fjármálaáætlunin ekki einu sinni uppreiknuð. Það er
    alvarlegt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>