<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:45:48" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:47:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:45:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og
    við erum þá alla vega sammála um að þetta er engin skemmtidagskrá. Ég get
    bara staðfest það hér og nú. Þegar við erum að tala um þennan halla aftur
    í tímann þá er það ekki bara sagnfræði heldur til þess að átta okkur á
    stærðargráðunni og hvað þetta hefur reynst erfitt verkefni. Hallinn
    tengist vissulega Covid og Grindavík en það var halli á ríkissjóði áður en
    Covid skall á. Það var líka halli á ríkissjóði áður en flugfélagið WOW fór
    á hausinn. Það var einfaldlega kerfisbundinn vandi í tíð fyrri
    ríkisstjórnar sem ekki var tekið á áður en þessi áföll dundu yfir. Já, ég
    tilheyri flokki sem kallaði eftir skjótari viðbrögðum við Covid og ég
    studdi það. En ég held líka að það hefði þurft að draga hraðar í land
    annars, vegna þess að verðbólgan sem á eftir fylgdi var m.a. vegna þessa
    gríðarlega peningamagns í umferð og þarna komu bæði aðgerðir
    ríkisstjórnarinnar, eða aðgerðaleysi, og Seðlabankans inn í.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>