<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:47:16" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:48:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:47:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er gott að hv. þingmaður gengst við því að
    þessi halli sé til kominn vegna Covid og Reykjanesselda. Það er ekki
    þannig að núverandi hæstv. fjármálaráðherra, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn,
    fjármálaráð — Moody's hækkaði lánshæfismatið áður en þessi ríkisstjórn hóf
    störf og það hefði ekki verið gert ef staða ríkisfjármála hefði verið
    slæm. Hún var það ekki. Í öllum alþjóðlegum samanburði kom hún vel út
    þannig að það að reyna að teikna myndina upp eitthvað öðruvísi gengur ekki
    eftir. Það er auðvelt að segja: Við hefðum bara gert þetta allt öðruvísi
    og tekið miklu frekar á þessu. Þið tókuð við í desember 2024. Tekjurnar
    árið 2025 voru 60 milljörðum meiri en menn ætluðu. Þið komuð með fjögur
    fjáraukalög og þið voruð ekki að gera það sem hv. þingmaður segir að þið
    hafið viljað gera. <ns:bjalla/> Þið voruð ekki að því. Þessar
    eftiráskýringar standast enga skoðun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>