<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:48:47" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 11:59:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:48:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fjármálaráðherra
    og ríkisstjórn fyrir fjárlagafrumvarpið sem er nú lagt fram hallalaust í
    fyrsta skipti í nær tíu ár. Það er auðvelt að týnast í fjárlögunum í
    hundruðum milljarða, þúsundum liða og ótal prósentum. Mig langar að byrja
    á þremur tölum sem kannski segja betur en flestar aðrar hvað er að gerast
    í ríkisfjármálunum. Þetta eru tölurnar 99, 94 og 5. Frumjöfnuður
    ríkissjóðs, sem fyrri fjármálaráðherrar lögðu mikið upp úr í sínum
    kynningum, er jákvæður um 99 milljarða kr. Hvað er frumjöfnuður? Það er
    afkoma ríkissjóðs áður en vaxtatekjur og vaxtagjöld koma til. En
    vaxtajöfnuður ríkissjóðs er neikvæður um 94 milljarða þannig að
    afgangurinn, 5 milljarðar, er plúsinn sem við erum að tala um þegar við
    tölum um hallalaus fjárlög.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessar tölur segja tvær sögur. Annars vegar jákvæða sögu; að
    undirliggjandi afkoma ríkissjóðs er orðin sterk og sterkari en hún hefur
    verið. Hin er auðvitað óþægilegri, að nánast allur frumafgangurinn fer í
    nettóvaxtakostnað. Vaxtagjöld ríkissjóðs stefna í 169 milljarða á þessu
    ári og verða samkvæmt frumvarpinu 155 milljarðar á næsta ári. Þetta gerist
    eftir átta ára tímabil þar sem samanlagður halli frá 2019 til loka þessa
    árs er áætlaður 866 milljarðar. Það kostar að vera lengi með ríkissjóð í
    halla en ég vona að mér fyrirgefist að nefna að það kostar líka að skulda
    í krónum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að staldra aðeins við þessa vaxtabyrði, ekki vegna þess
    að öll vaxtabyrði ríkisins skýrist af gjaldmiðlinum, svo er það auðvitað
    ekki, en þetta er dálítið skýrt samanburðardæmi. Íslenska ríkið á
    óverðtryggt skuldabréf í krónum sem fellur í gjalddaga í janúar 2031.
    Ávöxtunarkrafa þess á markaði í gær var 7,59%. Í maí á þessu ári gaf sami
    skuldari, íslenska ríkið, út fimm ára skuldabréf í evrum með nánast sama
    gjalddaga. Ávöxtunarkrafan í þeirri útgáfu var 3,352%. Munurinn er 4,2%.
    Sami skuldari, nánast sami lánstími, annar gjaldmiðill.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hver er stærðargráðan? Ef við reiknum heildarskuldir ríkissjóðs
    samkvæmt frumvarpinu, sem eru 2.646 milljarðar kr. í lok næsta árs, með
    þessum vaxtamun er munurinn á vaxtabyrðinni rúmir 110 milljarðar, nánar
    tiltekið 112, milli krónu og evru með sama skuldara og raunverulegum tölum
    af markaði. Skuldabréfin eru auðvitað með ólíka eiginleika og það er
    gengisáhætta fyrir okkur núna að taka lán í evrum þannig að við gerum það
    bara að takmörkuðu leyti, en þetta er stærðargráðan. Þá erum við ekki að
    tala um hagsmuni heimila eða fyrirtækja af því að hafa aðgang að lánum í
    evrum. 112 milljarðar eru hagsmunir ríkissjóðs ef ríkið gæti borið skuldir
    sínar í evrum; það myndi muna um það í fjárlagaumhverfinu. Þessir
    fjármunir geta ekki á sama tíma farið í heilbrigðisþjónustu, menntun,
    samgöngur eða í að greiða niður skuldir.</ns:mgr>

    <!--Hann talar um fjármálareglur í fleirtölu og nefnir síðan stöðugleikar., hef pfn. til að beygingin gerir passi betur ☺ hann talar síðar í ræðunni um fjármálareglur í fleirtölu en stöðugleikaregluna í eintölu / ii -->

    <ns:mgr>Mig langar að staldra aðeins við það sem fjármálaráðherra rakti
    réttilega: Fjármálareglur sem Alþingi hefur samþykkt, stöðugleikareglan,
    hún gerir ráð fyrir því að útgjöld geti hækkað um 2% að raunvirði.
    Útgjaldagrunnurinn í frumvarpinu hækkar um 1,2% að raunvirði, sem er
    minna, en með tekjuráðstöfunum þá er stöðugleikareglan í raun með 1,1% í
    mínus. Þannig að samkvæmt stöðugleikareglunni hefði Alþingi 40 milljarða
    svigrúm til þess að auka útgjöld án þess að brjóta regluna. Þetta
    undirstrikar að ríkisstjórnin er að ganga lengra en fjármálareglurnar
    segja til um. Hún er að senda skýr skilaboð og það felur auðvitað í sér
    pólitíska forgangsröðun. Ég nefni þetta vegna þess að það er ekki þar með
    sagt í mínum huga að við séum að víkja frá stöðugleikareglunni eða
    fjármálareglum sem Alþingi hefur samþykkt. Þær eru í grunninn skynsamlegar
    til að við séum að vinna skynsamlega með og á móti hagsveiflunni en það er
    líka mikilvægt upp á trúverðugleikann sem hefur verið allt of lítill í
    ríkisfjármálum og allt of lítill varðandi gjaldmiðilinn. Það hefur áhrif á
    verðbólguvæntingar og þar með verðbólgu í landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er verulegt mál að snúa hallarekstrinum
    við. Í fjárlögum þessa árs var gert ráð fyrir 28 milljarða halla.
    Núverandi horfur gera ráð fyrir 67,5 milljarða halla þannig að við þurfum
    að ná viðsnúningi upp á 72 milljarða til að ná árangrinum sem fjárlög
    segja til um og það er umtalsvert. Það er gert núna í frumvarpinu; annars
    vegar með aðhaldi í rekstri og hins vegar með því að færa fjárfestingar
    fram í tímann og nota fjárheimildir fyrri ára. Þetta þurfum við eðlilega
    að fara yfir í fjárlaganefndinni; bæði að skoða raunhæfni áformanna, m.a.
    út frá heilbrigðisþjónustunni sem er áberandi í því sem er umfram varðandi
    stöðu fjárlaga þessa árs, en líka varðandi fjárfestingarnar, hvort í
    einhverjum tilvikum sé verið að ýta á undan sér arðbærum fjárfestingum sem
    rétt væri að ráðast í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En lykilspurningin er auðvitað: Á hvaða róli erum við? Ef við
    skoðum heildarútgjöldin sem hlutfall af landsframleiðslu þá erum við komin
    á svipað ról og fyrir Covid; rétt rúmlega 30% af landsframleiðslu. Erum
    við lágútgjaldaland? Nei, við erum í lægri kantinum ef við berum saman
    allt hið opinbera miðað við Norðurlöndin en aðeins yfir meðaltali OECD.
    Við viljum auðvitað vera norrænt velferðarríki þannig að umræðan um að
    íslenska ríkið, eða hið opinbera, sé gríðarlega stórt er oft á villigötum.
    Það sem við þurfum að gera þegar við horfum fram í tímann er að velta
    fyrir okkur hvernig brúum við þróun varðandi öldrun þjóðarinnar, hvernig
    brúum við aukin útgjöld vegna varnartengdra atriða o.s.frv.; það sem við
    viljum gera til að vera gott samfélag til framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við þurfum í þessari umræðu núna í þinginu og inni í nefndum að
    spyrja: Hvað fáum við fyrir peningana? Er heilbrigðisþjónustan góð? Fá
    börnin okkar góða menntun? Eru innviðirnir í lagi? Og hvernig getum við
    fjármagnað þessa þjónustu á sjálfbæran hátt til lengri tíma? Við þurfum
    líka að spyrja, og það ræðum við ótrúlega sjaldan: Hvernig deilum við
    byrðunum? Hvernig tryggjum við raunverulegt eignarhald þjóðarinnar á
    auðlindum? Hvernig tryggjum við eðlilegan afrakstur af þeim? Eru breiðu
    bökin að bera í takt við styrk? Eða erum við að setja hlutfallslega þyngri
    byrðar á þá sem minna hafa á milli handanna?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er verkefnið og við erum í þessum ramma sem endurspeglar
    sterkt og ríkt samfélag en ramminn er engu að síður þröngur því hann
    einkennist af aðhaldi. En ég vil samt vekja athygli á því að við erum að
    bæta úr innviðaskuldinni. Við erum líka að fara í innviðaverkefni utan
    efnahags A-hlutans í gegnum Göng og brú með stórframkvæmdum sem verða
    fjármagnaðar á annan hátt og líka með veggjöldum. Við erum að taka í
    notkun fjölda hjúkrunarrýma sem eru ekki bara mikilvæg í sjálfu sér heldur
    bæta stöðuna á Landspítalanum og við erum að stíga stórt skref varðandi
    heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu um land allt. Við erum að bæta í til
    málefna barna og fjölskyldna. Við erum að hækka almannatryggingar og við
    erum að gera mikilvæga hluti í húsnæðismálum. Ég viðurkenni þó að eitt af
    því sem við verðum að skoða og ég staldra við er að við erum t.d. að
    leggja af vaxtabætur sem renna almennt til neðri hluta tekjustigans en
    höldum í skattaívilnanir til efri hluta tekjustigans sem eru að borga inn
    á höfuðstól fasteignalána. Þurfum við að velta fyrir okkur hvort þarna sé
    rétt skipt? <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fjárlög eru ekki markmið í sjálfu sér. Þau eru
    til þess að fjármagna lífsgæðasamfélag, menningu, listir og það sem okkur
    finnst máli skipta. <ns:bjalla/> Þar þurfum við bæði að verja og sækja
    fram. Mér finnst góð fjárlög eiga að endurspegla hvort tveggja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>