<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T11:59:37" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:01:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T11:59:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Ég
    vil nota tækifærið og spyrja hv. þingmann í rauninni út í tvennt. Í fyrsta
    lagi: Hv. þingmaður er í Samfylkingunni, flokki sem lofaði mjög skýrt
    fyrir kosningar að hækka ekki skatta. Nú er búið að hækka skatta um 60
    milljarða á tveimur árum, mestu skattahækkanir sem hafa sést í áratugi. Af
    hverju lofaði Samfylkingin fyrir síðustu kosningar að hækka ekki skatta?
    Sömuleiðis sagði formaður flokksins, sem núna er hæstv. forsætisráðherra,
    að þegar ríkisstjórnir gera lítið til að halda aftur af verðbólgu þá þarf
    Seðlabankinn að gera meira. Þegar þessi ríkisstjórn tók við voru vextir að
    lækka en þeir eru búnir að hækka stöðugt síðan. Ég spyr hv. þingmann: Er
    ríkisstjórnin ekki að gera nóg eða var þetta bara þvæla sem hæstv.
    forsætisráðherra sagði á síðasta kjörtímabili?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmanni hefur orðið tíðrætt um stöðugleikaregluna.
    Fjármálaráð taldi þetta vera forsendubrest og það þyrfti að lækka
    útgjaldaþakið, og menn þurftu að líta til þess í sinni álitsgerð, þær
    breytingar sem ríkisstjórnin gerði á lögum núna síðasta vor. Ég vil spyrja
    hv. þingmann út í það hvort hann telji hvort menn séu bara yfirhöfuð
    sammála einhverju sem fjármálaráð sagði í álitsgerð sinni vegna þess að
    við höfum ekki séð neitt þar. <ns:bjalla/> Ekki er komið neitt til móts
    við þær ábendingar sem þar koma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>