<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:01:57" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:04:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:01:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hér er spurt um skattstefnu Samfylkingarinnar
    og Samfylkingin lagði ríka áherslu á að þjóðin fengi eðlilegan arð af
    auðlindum sínum. Veiðigjöldum var vissulega breytt. Þær breytingar voru
    hins vegar mjög hóflegar og skilgreindar í skrefum. Ég hefði alveg séð
    fyrir mér, og það er augljóst, eins og þróunin hefur verið eftir að þessi
    lög voru sett, að hrakspárnar sem haldið var á lofti gagnvart þeim stóðust
    engan veginn og það má velta fyrir sér hvort það hefði ekki verið rétt að
    samþykkja lögin nokkurn veginn óbreytt og í raun má velta fyrir sér hvort
    veiðigjöldin séu eðlilega há. Við sjáum það t.d. þegar verið er að bera
    saman verð á nákvæmlega sama fiski í Færeyjum og á Íslandi, landaðri
    loðnu. Það er þriðjungsverð sem reiknast á þessa loðnu hér á landi og það
    hefur auðvitað áhrif á þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég er talsmaður þess að deila byrðunum á sanngjarnan hátt og
    standa með kaupmætti fólks, kjörum og jöfnuði. Ég nefndi það í ræðu minni
    að þetta þyrfti að ræða, m.a. í ljósi áskorana til framtíðar í opinberum
    fjármálum og er alltaf tilbúinn að ræða það. Ef bornar eru saman
    tekjubreytingar í fjárlögum þessa fjárlagafrumvarps og síðasta og
    fjárlagafrumvörpum síðustu ríkisstjórna, þá er ekki mjög mikill munur á.
    Tekjuskattur fyrirtækja var t.d. hækkaður til tveggja ára í tíð fyrri
    ríkisstjórnar. Hann var lækkaður í tíð þessarar ríkisstjórnar. Telur hv.
    þingmaður að það hafi verið mistök? En það er stundum talað eins og
    skattar séu almennt að hækka mikið í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það er
    erfitt að færa rök fyrir því <ns:bjalla/> þegar borið er saman við fjárlög
    undanfarin 7–10 ár og ég skora á þingmenn að gera það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>