<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:04:30" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:06:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:04:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hv. þingmaður
    samviskusamlega notaði ræðu sína eða svar til að gera eitthvað allt annað
    en að svara spurningunum. Ég spurði í fyrsta lagi: Af hverju lofaði
    Samfylkingin fyrir síðustu kosningar að hækka ekki skatta? Af hverju gerði
    hún það? Skattar hafa hækkað um 60 milljarða, þetta eru ekki bara
    veiðigjöld. Við getum rætt þau og afleiðingar þeirra og hvernig gagnrýni á
    þau hefur elst og hún hefur elst prýðilega. En við skulum sleppa því núna.
    Ég er hins vegar alveg til í að ræða það við hv. þingmann hvenær sem er.
    Ég bara spyr: Af hverju lofaði Samfylkingin að hækka ekki skatta? Það var
    alveg skýrt, talað um venjulegt fólk, sérstaklega í kosningasjónvarpi.
    Núverandi hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir í þessum ræðustól á síðasta
    kjörtímabili: Þegar ríkisstjórnir gera ekki nóg til að halda aftur af
    verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Ég spurði hv. þingmann:
    Hefur ríkisstjórnin ekki gert nóg eða var þetta tóm þvæla hjá núverandi
    hæstv. forsætisráðherra? Ég spurði að því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo spurði ég líka út í fjármálaráð, af því að hv. þingmaður
    talaði um stöðugleikaregluna. Fjármálaráðherra sagði að aðgerðir núverandi
    ríkisstjórnar væru forsendubreyting á stöðugleikareglunni og það þyrfti að
    endurskoða hana. Ég spurði hv. þingmann hvað honum fyndist um það. Það er
    ekkert svar. Reyndar er þannig að ég bætti við og ég er ekkert mjög
    bjartsýnn á að hv. þingmaður muni svara neinum af þessum spurningum. En ef
    hann vill ekki ræða þær þá vill hann kannski ræða það hvort honum finnist
    einhver ástæða til þess að hafa fjármálaráð þegar þú ert með ríkisstjórn
    sem fer ekkert eftir því sem ráðið segir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>