<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:06:43" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:08:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:06:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil þakka þingmanninum andsvar og ítreka að það var
    sannarlega stefna Samfylkingarinnar að hækka veiðigjöld og þau hefðu mátt
    hækka meira að mínu mati. Það var líka talað um að verja venjulegt fólk
    þegar skattar væru annars vegar. Það sést m.a. á því að stefna fyrri
    ríkisstjórnar um að taka upp kílómetragjald hefur verið útfærð þannig að
    við erum núna að hækka það minna en gert var ráð fyrir í áætlunum síðustu
    ríkisstjórnar. Það sést á því að við erum núna ekki að hækka skatta á fólk
    heldur banka í ljósi þess að þegar bankaskatturinn var afnuminn sýna
    greiningar … <ns:frammíkall skst="GÞÞ">… hækka skatta á fólk?
    </ns:frammíkall>— Þegar bankaskatturinn var afnuminn sýna greiningar að sú
    aflétting var ekki látin renna til neytenda af hálfu bankanna. Þannig
    hefur þessi ríkisstjórn reynt að deila byrðunum á sanngjarnan hátt. Ég
    held að þróun síðustu ára sýni betur en mjög margt annað að ytri áföll
    hafa mjög mikil áhrif á íslenskt efnahagslíf, bæði verðbólgu og vexti.
    Krónan er gríðarlega lítill gjaldmiðill og hefur virkað sem magnari frekar
    en dempari á þessar sveiflur. Síðasta ríkisstjórn var kosin frá vegna þess
    hversu illa henni gekk að ná niður verðbólgu eftir þau áföll og tókst það
    verkefni þannig að verðbólgan var í 10% og stýrivextir líka, því sem næst.
    Verkefni þessarar ríkisstjórnar er að taka til eftir þetta og hallalaus
    fjárlög eru sannarlega hluti af því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>