<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:09:03" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:11:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:09:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. En ef við
    horfum á stóru myndina og hvernig efnahagsmálin hafa þróast hér í höndum
    núverandi ríkisstjórnar þá getum við séð að þegar ríkisstjórnin tók við
    árið 2024 voru vextir byrjaði að lækka; vaxtalækkunarferlið var hafið.
    Hins vegar hefur þróunin orðið slík að vextir hafa hækkað eftir að
    ríkisstjórnin tók við. Vissulega lækkuðu þeir eitthvað aðeins á tímabili
    en þeir eru farnir að hækka aftur. Við verðum því líka að tala um hlutina
    eins og þeir eru. Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin er ekki að ná tökum
    á efnahagsmálunum. Og nú er ég ekki að standa hér og segja að það sé
    einfalt verkefni, alls ekki. Við þurfum að gæta sanngirni þegar kemur að
    því. En eins og hv. þingmaður kom inn á þá skiptir máli að við séum að
    deila byrðunum á sanngjarnan hátt og að það sé stefna ríkisstjórnarinnar.
    Á sama tíma og ég segi það þá sjáum við opinber gjöld hækka um 5,2%, sem
    er tvöfalt á við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Kílómetragjaldið er að
    hækka og hv. stjórnarþingmönnum er tíðrætt um kílómetragjaldið og áform
    síðustu ríkisstjórnar. En síðasta ríkisstjórn brást við þeim aðstæðum sem
    komu upp hverju sinni og var tilbúin til þess að beygja út af ef þess
    þyrfti. Ef staðan væri með þeim hætti að hér væri verðbólga að aukast og
    vextir að hækka þá værum við tilbúin til að endurskoða hlutina. En talandi
    um það að deila byrðunum og að þetta hafi ekki áhrif á venjulegt fólk, við
    erum að sjá að barnabætur standa í stað að krónutölu og rýrna að
    raunvirði. Þetta er yfirleitt það fólk í landinu sem þarf á stuðningi að
    halda, sem er að koma sér þaki yfir höfuðið, er að koma börnunum upp.
    Vaxtabótakerfið er skert og það verður dýrara fyrir fólk að byggja og
    endurbæta húsnæði vegna minni endurgreiðslu virðisaukaskatts. <ns:bjalla/>
    Það er hærri mánaðarlegur kostnaður fyrir fjölskyldur sem nú eru að takast
    á við háa vexti, allt of háa vexti, dýrt húsnæði og hækkandi
    verð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja <ns:bjalla/> hv. þingmann: Hvað af þessum
    atriðum er ekki skattahækkun á venjulegt fólk og með hvaða hætti
    <ns:bjalla/> er verið að deila byrðunum á sanngjarnan hátt?<!--Segir: "var tilbúin til þess að beygja af ef þess þurfti (!)." Held að hún hafi ekki meint að ríkisstjórnin ætlaði að bresta í grát. Hef "út" með en má breyta! --></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>