<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:11:44" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:14:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:11:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir
    ágætt andsvar og fínar spurningar. Þetta er nákvæmlega umræðan sem mér
    finnst eðlilegt að við tökum í tengslum við fjárlögin. Ég býð þingmanninn
    sérstaklega velkomna í fjárlaganefnd og hlakka til að vinna með henni á
    þessu hausti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verðbólgan fór hæst í 10% í byrjun árs 2023 og stýrivextir fóru í
    9,25% um hálfu ári síðar. Þeir voru rétt farnir að lækka sex vikum fyrir
    kosningar í 9% og voru sem sagt í 9% þegar þessi ríkisstjórn tók við. Það
    voru vonbrigði að verðbólgan færi upp, sannarlega, en það verður ekki
    annað sagt en að núverandi ríkisstjórn hafi gert sitt í gegnum aðhaldssöm
    fjárlög, önnur fjárlögin núna. Og eins og ég dró fram þá er aðhaldið í
    raun, umfram stöðugleikareglu, um 40 milljarðar í nýframlögðu frumvarpi.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Þingmaðurinn vekur máls á því að það er verið að ganga út frá því
    að krónutölugjöld haldi verðgildi sínu, þ.e. 5,2% miðast ekki við það að
    þetta hækki að raunvirði heldur haldi verðgildi sínu. Það kæmi mér ekki á
    óvart að nákvæmlega þetta kæmi til tals í samtölum við aðila
    vinnumarkaðarins og við erum þegar farin að heyra tóna í því efni. Ég held
    að við eigum mjög mikið undir því að ná góðri samstöðu um hvernig við
    stígum næstu skref til að hemja verðbólgu á Íslandi. Við erum að gera
    okkar með fjárlögum en samtal og samkomulag við aðila vinnumarkaðarins er
    þar líka mikilvægur þáttur og þar kemur að Framsóknarflokknum, sem er í
    meiri hluta í Reykjavík. Nýr meiri hluti í Reykjavík hefur boðað
    stórfelldar gjaldskrárhækkanir <ns:bjalla/> á þessu hausti. Hver er
    afstaða þingmannsins til þess? Eru 5,2% þar þak <ns:bjalla/> eða á það að
    vera neðar? Mun þingmaðurinn mótmæla opinberlega ef meiri hlutinn í
    Reykjavík gengur lengra, <ns:bjalla/> eins og hótað hefur verið?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>