<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:14:18" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:16:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:14:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin en einnig
    spurningarnar. Við tökum eflaust á þeim á eftir þegar ég verð með mína
    ræðu. En nú er ég í andsvari og er að spyrja hv. þingmann. Mig langaði
    aðeins að koma inn á það að við getum endalaust verið að ræða hér söguna
    og litið aftur í tímann en við þurfum að horfa á staðreyndir út frá
    deginum í dag: Hver þróunin verður á næsta ári og hver stefna
    ríkisstjórnarinnar er þegar kemur að efnahagsmálum og trúverðugleika.
    Þegar fjárlög fyrir þetta ár voru gerð og samþykkt á síðasta ári þá voru
    alls konar viðvaranir uppi varðandi gjaldskrárhækkanir ríkisstjórnarinnar
    og hvaða áhrif það myndi hafa á verðbólgu og vexti hér á landi. Þetta var
    hunsað, algerlega, og farið í þessar hækkanir með galopin augun. Því miður
    var raunin sú að allar þessar áhyggjuraddir höfðu rétt fyrir sér. Við
    höfum ekki náð tökum á verðbólgu og vöxtum og 85% landsmanna treysta ekki
    ríkisstjórninni í efnahagsmálum. Þetta eru alveg rauð ljós. Við
    Framsóknarmenn erum svo sannarlega tilbúin að hjálpast að við þetta
    verkefni og leggja okkar af mörkum. Þegar kemur að gjaldskrárhækkunum, af
    því að hv. þingmaður fór aðeins yfir það, þá höfum við m.a. lagt fram
    tillögu um sameiginlega gjaldskrárstefnu ríkis og sveitarfélaga einmitt
    til þess að það sé gagnsæi, það sé fyrirsjáanleiki þannig að fyrirtækin í
    landinu og fólkið í landinu viti svona nokkurn veginn hvernig stefnan er.
    Hérna er ekki verið að tala um einhverja samræmingu á gjaldskrárhækkunum
    eða eitthvað svoleiðis, heldur bara um gagnsæi þannig að það komi ekki hér
    himinháar hækkanir, 5,2%, eins og er verið að gera hér hjá
    ríkisstjórninni. Þannig að enn og aftur: Jú, við erum tilbúin til að
    leggja okkar á vogarskálarnar og ég hlakka sömuleiðis til samstarfsins í
    fjárlaganefnd á komandi vetri.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>