<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:16:31" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:18:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:16:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir sitt
    síðara andsvar og fyllist bara gleði og tilhlökkun gagnvart því að vinna
    með þingmanninum í að ná sveitarfélögunum að borðinu og reyna að búa
    þannig um hnúta að við getum öll stigið stolt frá því verki að klára
    umfjöllun um fjárlög inni í fjárlaganefnd. Til þess að leggja grunn að
    hverju? Jú, lækkun verðbólgu og þar með vaxta, þó að við vitum að
    krónuumhverfið sé flókið og erfitt. Við eigum, eins og við sjáum á
    verðbólguvæntingunum, í glímu við það sem í hagfræðinni hefur verið kallað
    pesos-vandamálið, þ.e. þegar Mexíkó var kannski með allar tölur fínar þá
    var það samt undirliggjandi trú eða ótti í samfélaginu að eins og áður
    myndu smá áföll eða einhverjar breytingar leiða til þess að það yrði meiri
    verðbólga í gjaldmiðli Mexíkó heldur en jafnvel efnahagstölurnar segðu til
    um. Það er kannski vandinn sem við vorum að ræða í sumar varðandi íslensku
    krónuna og sögu hennar, að við þurfum kannski að ganga lengra bæði í
    aðhaldi í ríkisfjármálum en ekki síður í stýrivöxtum Seðlabankans en
    verðbólgutölurnar gefa tilefni til. Við erum kannski með um eða yfir 3%
    raunstýrivexti til að hemja verðbólgu á meðan önnur lönd eru með
    stýrivexti nálægt sinni verðbólgu eða jafnvel lægri til að ná sama
    aðhaldi. Þannig að þetta er umhverfi sem við þurfum að halda áfram að ræða
    þó að við höfum ákveðið að taka ekki upp þráðinn í viðræðunum við ESB. Við
    þurfum að vera raunsæ þegar við erum að ræða krónuumhverfið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>