<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:18:43" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:28:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:18:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum hér nýframkomið fjárlagafrumvarp, eða eigum
    við frekar að segja fjárlagafrumvarpið, það langþráða sem stjórnarliðar
    hafa verið að bíða eftir alveg frá því að þessi stjórn tók við völdum,
    þ.e. fjárlagafrumvarpið þar sem menn bera vonir til þess að í fyrsta sinn
    í fjöldamörg ár verði fjárlög hallalaus. Þetta er auðvitað gott markmið og
    sjálfsagt og eitthvað sem við myndum öll vilja og ætla að stefna að.
    Heildartekjur í þessu fjárlagafrumvarpi fara úr 1.592 milljörðum í 1.708
    milljarða, þ.e. hækkun tekna er tæpir 116 milljarðar. Heildarútgjöld
    ríkisins fyrir árið 2027 eru áætluð 1.621 milljarður á þessu ári en áætlað
    er að fara í rúma 1.703 milljarða á næsta ári, þ.e. hækkun um tæplega 83
    milljarða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað þýðir þetta í raun og veru, frú forseti? Í raun og veru þýðir
    þetta að lykilatriði í þessum fjárlögum, frú forseti, er tekjuaukningin,
    þ.e. þessum útgjöldum, sem sífellt eru að vaxa, á síðasta ári og þessu ári
    mjög mikið, og áframhaldandi útgjaldaþenslu á næsta ári upp á 83
    milljarða, er mætt með auknum tekjum. Hvað þýðir það á mannamáli, frú
    forseti? Það þýðir einfaldlega að ríkisstjórnin er að hækka skatta. Það er
    bara svo einfalt. Þetta er í raun sáraeinfalt. Ríkisstjórnin virðist ekki
    geta tekið á útgjöldunum og mætir sífellt auknum útgjöldum með aukinni
    skattheimtu. Þetta er niðurstaðan í þessu fjárlagafrumvarpi í örstuttu
    máli, frú forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvaða skattar eru þetta, frú forseti? Menn hafa svo sem talað um
    þá hér áður. Ég ætla aðeins kannski að renna yfir það. Það eru t.d.
    gjaldahækkanir ríkissjóðs, sem er náttúrlega sérstakur kapítuli út af
    fyrir sig, að ríkisstjórnin skyldi ganga fram með því fordæmi að hækka öll
    gjöld um rúm 5% á sama tíma og stefnt er að því að halda verðbólgunni í
    2,5%. Þetta er auðvitað alveg sérstakt, frú forseti, og erfitt að afsaka
    þetta eða reyna að breiða yfir þetta á nokkurn hátt. Þetta er
    verðbólguhvetjandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þeir ætla að hækka bankaskatt. Á hverjum lendir það? Það lendir á
    skuldurum og skuldugum heimilum. Þeir ætla að hækka gjaldtöku á
    náttúruperlur um 5 milljarða. Það gæti komið niður á ferðaþjónustu sem er
    öflugur atvinnuvegur, sérstaklega úti á landi. Menn höggva í sama knérunn
    sí og æ.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ráðgerð er hækkun kílómetragjalds um tæp 16%. Þetta er nýr
    skattur, kom á hérna með miklum hávaða fyrir síðustu áramót og hefur
    gengið mjög brösuglega, frú forseti, að koma því kerfi sem sér um
    innheimtu á þessum skatti í lag og menn segja margar draugasögur af
    viðskiptum sínum við kerfið þar sem menn eru að reyna að fá leiðréttingar
    og endurgreiðslur, sem gengur alveg hreint hroðalega fyrir hinn almenna
    borgara, svo hroðalega að margir hverjir hafa algjörlega gefist upp á að
    reyna að fá einhvers konar leiðréttingu á þessu. Þetta á að hækka um 16%,
    frú forseti. Það þarf ekki að taka fram að það er auðvitað langt umfram
    verðbólgu í fyrsta lagi og langt umfram öll verðbólguviðmið og lendir
    auðvitað á sérstaklega á landsbyggðinni. Flutningskostnaður eykst og vörur
    munu þá hækka, sérstaklega þegar fjær dregur höfuðborginni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það á að hækka álögur á ferðaþjónustuna með því að hækka
    virðisaukaskatt á baðlón og gufuböð. Mun þetta hafa áhrif á
    ferðaþjónustuna? Það gæti gert það. Við erum minnug þess þegar skattar
    voru hækkaðir á skemmtiferðaskip sem olli bara miklum samdrætti á þeim
    vettvangi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það á að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af endurbótum á
    húsnæði. Það mun draga úr vilja fólks til að endurnýja sitt húsnæði og
    halda því við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt sem kannski er ekki búið að fjalla mikið um er
    tekjuskatturinn. Nú er persónuafsláttur og skattþrepin öll þrjú að hækka í
    samræmi við verðbólgu árlega en að því viðbættu hefur verið svokallað
    framleiðniviðmið sem er kannski skiljanlegt að tala um. En ofan á þessa
    hækkun hefur verið bætt 1% í mörg ár, 1% þar sem framleiðni í landinu
    hefur verið að aukast, en þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að fella það
    niður. Það ber auðvitað lítið á þessu en þetta er auðvitað ekkert nema,
    frú forseti, skattahækkun. Þetta er skattahækkun vegna þess að þessi þrjú
    skattþrep munu ekki hækka um þetta 1% sem hefur verið í mörg ár og
    persónuafslátturinn ekki heldur. Þetta mun auðvitað valda aukinni
    skattbyrði á allan almenning, alla þá sem borga skatta. Þetta mun hækka
    skatta. Þetta atriði fer svolítið undir radar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo eru ýmsar aðrar skattbreytingar sem ég ætla kannski ekki að
    fara nánar í hér tímans vegna og ég ætlaði nú að eyða kannski enn þá meiri
    tíma í að fara yfir aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem ég hef nú
    verið að deila hér á, síðast í andsvörum við hæstv. fjármálaráðherra, en
    tímans vegna get ég ekki farið yfir það. En þessi 5 milljarða kr. afgangur
    sem er stefnt að er auðvitað algjörlega innan allra skekkjumarka og sýnir
    að það er engin alvara á bak við þetta fjárlagafrumvarp, frú forseti.
    Þessi afkomubati er sóttur með hærri sköttum. Það er ekki tekið á þeim
    útgjaldaflokkum sem hafa sogað til sín ógrynni fjár undanfarin ár. Vil ég
    nefna þar hælisleitendamál, loftslagsmál og útþenslu báknsins sem er alveg
    sérkapítuli. Það er ekkert tekið á því. 1% fækkun ríkisstarfsmanna, sem er
    ekki einu sinni í hendi, á þessu ári á að koma til sparnaðar á næsta
    ári.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin boðar hækkanir á öllum þjónustugjöldum. Þær hækkanir
    munu hafa verðlagsáhrif, frú forseti. Þess er skemmst að minnast að
    Seðlabankinn rökstuddi hækkun stýrivaxta fyrir skemmstu með vísan til
    verðlagsáhrifa vegna hvers kyns gjaldahækkana ríkisins. Þessar hækkanir
    leiða til vaxtahækkana, frú forseti. Með öðrum orðum: Íbúðarkaupendur eru
    að greiða hærri vexti af lánum sínum vegna stefnu ríkisstjórnarinnar í
    þessum efnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er ótalin stærsta ástæðan fyrir verðbólgu og háum vöxtum um
    þessar mundir. Það er stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum þar sem
    hún hefur í sýnd og reynd gefist upp á að hemja verðbólguna, frú forseti.
    Verðbólgan og hávextirnir eru í boði ríkisstjórnarinnar. Nú er svo komið
    að t.d. að bætur Tryggingastofnunar eru að mörgu leyti tengdar við
    launavísitölu þvert á ráðleggingar hagfræðinga sem bent hafa á að aðgerðir
    af þessu tagi geri ríkisfjármálin að umtalsverðu leyti ósjálfbær. Unga
    fólkið, frú forseti, sem er að kaupa sér fasteignir um þessar mundir á því
    ekki von á góðu frá þessari ríkisstjórn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>