<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T12:29:01" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:30:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:29:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ræðuna og
    er ánægður að heyra hans jákvæða viðhorf til hallaleysis
    fjárlagafrumvarpsins. Mig langar til að fá aðeins frekari útskýringu á
    þeirri ályktun hv. þingmanns að aðhaldsstigið sé ónógt í
    fjárlagafrumvarpinu í ljósi þess að hér er um að ræða aðhaldssamasta
    fjárlagafrumvarp í einhverja áratugi. Ég á raunar mjög bágt með að sjá með
    hvaða hætti hv. þingmaður dregur þessa ályktun og vil mjög gjarnan fá
    útskýringu á því. Ég hefði einnig áhuga á því að vita, þegar hv. þingmaður
    telur að ríkisstjórnin hafi gefist upp á því verkefni að ná niður
    verðbólgu, hvað hann telur að ríkisstjórnin ætti að vera að gera í ljósi
    þess að það eru bara ákveðin verkfæri sem eru í verkfærakistu ríkisins.
    Með hvaða öðrum hætti ætti að beita þeim verkefnum að mati hv.
    þingmanns?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>