<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:30:35" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:32:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:30:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir hans andsvar.
    Hann fullyrðir að þetta sé aðhaldssamasta fjárlagafrumvarp, ég held hann
    hafi sagt í áratugi. Nú þekki ég það að sjálfsögðu ekki kannski nægilega
    vel hvort það megi fullyrða svo og taka svo djúpt í árinni eins og hæstv.
    ráðherra er að gera. En varðandi þetta meinta aðhald sem hæstv. ráðherra
    er að spyrja um ítrekað, þá spyr ég á móti: Af hverju fóru fjárlög þessa
    árs svona mikið fram úr sér eins og raun ber vitni? Þar munar einhverjum —
    ég man nú ekki töluna en það er eitthvað yfir 30 milljarðar sem voru aukin
    útgjöld. Er það dæmi um aðhaldssemi þessarar ríkisstjórnar á yfirstandandi
    ári? Hverju má þá búast við á næsta ári?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætlaði í minni ræðu hér áðan að fjalla örlítið um aðhaldið
    frekar, og reyndar miklu meira, en tíu mínútur eru nú ekki langur tími
    þegar maður byrjar hérna uppi í pontunni. En ég ætlaði t.d. að tala um
    fækkun ríkisstarfsmanna, sem mér er hugleikin. Ekki það að ég vilji segja
    upp gífurlegum fjölda ríkisstarfsmanna, ég vil bara benda hæstv. ráðherra
    t.d. á aðferðirnar sem gætu dugað og hafa stundum, sumar þeirra alla vega,
    verið reyndar áður; t.d. eins og að setja á þá reglu að fyrir hverja tvo
    ríkisstarfsmenn sem hætta — því það er mjög mikill fjöldi ríkisstarfsmanna
    af þessum tæplega 30.000 sem hætta á hverju ári vegna aldurs eða annarra
    ástæðna. Það má auðveldlega spara þar með því að t.d. að ráða bara einn í
    staðinn fyrir tvo. Það má setja ráðningarbann á ákveðnar stofnanir eða
    ákveðna málaflokka þar sem menn telja kannski ekki þörf á að fjölga
    ríkisstarfsmönnum meira. Það má leggja upp t.d. rökstuðning fyrir hverri
    nýrri ráðningu sem ríkið ræðst í.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>