<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-10T12:33:01" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:34:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:33:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Þó að það sé kannski óvanalegt að ég sé til svara í
    andsvörum við hv. þingmann þá held ég að við séum nægilega samhent hér til
    að leyfa svoleiðis frávik. Ég hef þegar farið yfir það hvers vegna þessi
    framúrkeyrsla er. Hún er til komin annars vegar vegna umfangsmeiri
    kostnaðar í liðum sem ríkið greiðir óháð því hver kostnaðurinn er og hins
    vegar vegna hærri fjármagnskostnaðar og ég fór yfir það í nokkrum svörum
    hér fyrr í þessari umræðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sakna þess auðvitað að hv. þingmaður skyldi ekki svara mér
    þeirri einföldu spurningu hvað ríkið ætti að vera að gera annað. Ég vil í
    þessu samhengi, ef svar hv. þingmanns er að fækka ætti ríkisstarfsmönnum,
    benda honum á hversu umfangsmikil sú fækkun þyrfti að vera ef það ætti að
    mæta aðhaldi sem skilaði hallalausum fjárlögum. Hér þarf meira til. Það er
    ekki bara íslenskt vandamál heldur vandamál víða um hinn vestræna heim að
    það hefur skort kjark til að taka á hallarekstri ríkja. Við sjáum
    ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa eiginlega allra ríkja í heiminum hækka um
    þessar mundir vegna einmitt áhyggja af því. Þess vegna er, eins og við hv.
    þingmaður erum sammála um, gríðarlega mikilvægt að við náum hallalausum
    fjárlögum. Að halda að það sé mögulegt að gera það einungis með uppsögn
    ríkisstarfsmanna, þá hefði ég gjarnan viljað heyra með hvaða hætti hv.
    þingmaður telur að mögulegt sé að veita þá þjónustu sem sjúkrahús,
    lögregla, leikskólar og landhelgisgæsla veita ef ekki með
    starfsfólki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>