<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:34:54" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:37:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:34:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir andsvör hæstv.
    fjármálaráðherra. Ég vil benda á að þessi framúrkeyrsla á yfirstandandi
    ári, þessi hækkun útgjalda umfram það sem áætlað var — það er ekki bara
    ein ástæðan fyrir henni. <!--Bætti við „fyrir henni“ / ii--> Þetta er
    hækkun á fjölmörgum málefnasviðum hjá ríkinu. Það sem ég hef verið að tala
    fyrir margoft undanfarinn þingvetur er að það virðist sem svo að
    ríkisstjórnin sé ekki að taka á þeim málaflokkum og þeim málefnasviðum þar
    sem útgjöldin hafa verið stjórnlaus á undanförnum árum. Til dæmis eitt sem
    kom fram í svari við fyrirspurn hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur:
    Svo virðist vera sem eftirlit með bótagreiðslum almannatrygginga hafi
    verið mjög áfátt á undanförnum árum og hafi nánast ekki verið neitt. Ef
    tekinn er samanburður á milli ára, undanfarinna kannski tíu ára, þá hefur
    eftirlit með þessum útgjöldum ríkisins, sem eru mjög veigamikill og stór
    þáttur í útgjöldum ríkisins, hrapað á undanförnum árum. Ég er ekki að
    segja að það hafi verið rosalega gott áður en það er nánast ekki neitt.
    Þar er ég að vísa í fyrirspurn sem ég er ekki með þingskjalanúmerið á en
    var í fréttum, held ég, í gær. Þannig að það er að mörgu að hyggja. Ég get
    líka bent á að þessi loftslagsmál sem hefur gengið verulega illa að fá
    einhver svör við í raun og veru og þaðan af síður að fá svör við því hvaða
    árangur er af öllum þeim fjáraustri sem í þann málaflokk hefur farið. Það
    hefur ekki gengið vel og hef ég sjálfur verið fremstur í flokki við að
    spyrja að því. Það hefur ekki gengið vel að fá það rökstutt hver árangur
    af öllum þessum fjáraustri hefur verið. Það eru margar matarholurnar í
    fjárlögum ríkisstjórnarinnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>