<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T12:37:20" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 12:47:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T12:37:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við í Flokki fólksins erum afar sátt við það
    fjárlagafrumvarp sem er hér til umræðu. Ég hlakka til þeirrar vinnu sem er
    fram undan við yfirferð á því, eins og ég vænti áfram góðrar samvinnu við
    stjórnarandstöðuna við að gera gott frumvarp að enn betri fjárlögum fyrir
    næsta ár. Hér er um að ræða fjárhagsramma yfir sameiginlegan rekstur sem
    mikilvægt er að skapa sem breiðasta sátt um. Allar tillögur, hvaðan sem
    þær koma, eru vel þegnar; að fá hvar þurfi að bæta í en ekki síður hvar sé
    hægt að spara og ná jafnvel í enn frekari tekjur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Staðan á Íslandi er um margt ákjósanleg. Allar helstu
    sjávarafurðir, sem eru um 40% af vöruútflutningi þjóðarinnar, seljast á
    afar háu verði. Það sama á við um afurðir stóriðjunnar. Eldið fer vaxandi
    og ferðamenn streyma til landsins. Að auki bendir allt til þess að hægt sé
    að auka gjaldeyristekjur gríðarlega af sjávarútvegi með auknum veiðum og
    gagnsærri verðmyndun, en ég fer meira yfir það síðar í ræðunni. Það sem
    skyggir á stöðuna er að frá árinu 2019 er uppsafnaður halli á ríkissjóði á
    níunda hundrað milljarða króna. Þetta er gríðarlega há fjárhæð. Í ljósi
    góðrar stöðu væri ekki réttlætanlegt fyrir ábyrg stjórnvöld og þingheim
    allan að hunsa stöðuna. Við hljótum að gera atlögu að því að stöðva
    hallarekstur sem leiðir að öðrum kosti til enn meiri skulda og aukins
    vaxtakostnaðar ríkisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvert einasta mannsbarn á Íslandi þekkir kostnaðinn af því að
    skulda. Vaxtakostnaður ríkisins er nú um 148 milljarðar kr. á ári. Ríkið
    greiðir því á hverjum og einum einasta degi liðlega 400 millj. kr. í
    vexti. Það fæst ýmislegt fyrir 148 milljarða kr.; til að mynda myndi
    upphæðin duga fyrir þremur Fjarðarheiðargöngum. Vaxtagreiðslur ríkisins í
    tíu daga dygðu fyrir öllum útgjöldum sveitarfélagsins Fjallabyggðar, þ.e.
    Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, þar með töldum kostnaði við rekstur
    hafnarinnar, skóla, leikskóla, yfirstjórnar, áhaldahúss og veitna, svo
    eitthvað sé talið upp. Framangreindir þættir ættu að verða til þess að
    þingmenn, allir sem einn, sameinuðust um að stöðva frekari skuldasöfnun.
    Það eru veigamikil rök fyrir því að stöðvun hallarekstur ríkissjóðs myndi
    leiða til bættra vaxtakjara sem aftur myndi létta róðurinn hjá ríki og
    þorra almennings með lægri vöxtum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Deilurnar um fjárlögin ættu því að hverfast um hvaða leiðir
    þingmenn vilja fara til þess að ná þessu markmiði. Við þingmenn Flokks
    fólksins erum ánægðastir með að samhliða rekstrarlegri ábyrgð sé gert
    betur við þá sem búa við hvað kröppustu kjörin í þjóðfélaginu. Í
    frumvarpinu er gert ráð fyrir því að bætur almannatrygginga, þ.e. elli- og
    örorkulífeyrisþegar, og bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð hækki um
    7,3% frá 1. janúar 2027 í samræmi við launaþróun á liðnum árum. Það er í
    samræmi við lög sem samþykkt voru á síðasta þingi og við erum auðvitað
    afar sátt við það. Áfram er gefið í hvað varðar uppbyggingu
    hjúkrunarheimila, sem er vel. Það er ekki sanngjarnt að líta á þessa
    uppbyggingu sem beinan kostnað. Beinn sparnaður hlýst af uppbyggingu
    hjúkrunarheimila og rekstri sjúkrahúsa fyrir utan bætt lífsgæði eldri
    borgara sem ekki er hægt að líta fram hjá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þá að raunhæfum möguleikum til að auka útflutningstekjur
    sjávarútvegsins. Með fullri virðingu fyrir þingmönnum stjórnarandstöðunnar
    er holur tónn í ræðu þeirra þegar kemur að umræðu um að auka
    útflutningstekjur úr helstu útflutningsafurð þjóðarinnar. Það snertir
    einhverja kviku hjá mörgum ef rætt er um að tryggja gagnsæja verðmyndun
    þannig að þeir sem geta greitt hæsta verðið fyrir fiskinn fái hann til
    vinnslu úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Í Færeyjum eru til að mynda
    reglur sem kveða á um að hvert og eitt skip er skyldugt til að setja 30%
    af botnfisksafla á markað. Þannig er hægt að samhæfa vinnslu og útgerð með
    sanngjarnari verðlagningu. Við þurfum að líta til þess. Það blasir
    jafnframt við að hægt væri að stuðla að auknum virðisauka þjóðarinnar með
    frekari vinnslu sjávarafurða. Það er nauðsynlegt að við reynum að koma því
    í kring í auknum mæli þannig að fiskurinn sé ekki fluttur til vinnslu
    erlendis í gámum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef notuð er sama veiðiregla og var í notkun fyrir tíu árum hefði
    síðasta loðnuvertíð skilað 100.000 tonnum meiri afla á land. Meðalvöxtur
    þorsks er nánast í öllum árgöngum undir meðaltali sem gefur til kynna að
    bæta megi verulega í veiðina. Nýlega var upplýst að stór hluti af
    veiðiheimildum í ufsa er ekki veiddur heldur notaður í einhverjar
    tegundatilfærslur og brask. Það má leiða líkur að því að þarna verði
    þjóðin af allt að 10 milljörðum kr. í beinhörðum gjaldeyri. Því er
    nauðsynlegt að breyta reglum þannig að menn hafi ekki hag af því að veiða
    ekki fiskinn og nota hann þess vegna í tegundatilfærslu eða eitthvað annað
    sem er algerlega þvert á hag þjóðarinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Fjárlagafrumvarpið boðar aðhald upp á 8 milljarða kr.
    með almennu aðhaldi og fækkun starfa hjá ríkinu um 1%. Það ætti að vera
    gerlegt þar sem nýjar tölur frá Byggðastofnun gefa til kynna að
    ríkisstjórnir fyrri ára hafi fjölgað ríkisstarfsmönnum um 25% á einum
    áratug. Auk þess ættu tækninýjungar og gervigreind að gefa aukið rými til
    framleiðniaukningar starfsfólks. Hér mun reyna á útsjónarsemi ráðamanna og
    forstöðumanna stofnana í að fara vel með skattfé almennings. Nú þegar búið
    er að sameina stofnanir, m.a. sýslumenn og verið er að stofna Stofnun
    atvinnuveganna, þá er rétt að horfa til ýmissa þátta. Það er mikilvægt að
    yfirstjórn stórra stofnana líti ekki aðeins til sparnaðar á útstöðvum og
    störfum þeirra sem eru í beinum tengslum við notendur; ekki síður verði að
    horfa til sparnaðar í yfirstjórn og stoðdeildum stofnana. <!--Heyrist hann segja „til sparnaðar á útstöðvum og störfum þeirra“
má gjarnan hlusta, 12:44:20 ☺--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að sumum framkvæmdum verði
    frestað. Það gefur stjórnvöldum í sumum tilfellum tóm til að endurskoða
    fyrri áætlanir, m.a. fjárframlög til byggingar fangelsis. Aðrar boðaðar
    tekjuráðstafanir til að stoppa í fjárlagagatið eru hóflegar og vel
    ígrundaðar. Hækkun kílómetragjalds um rúma krónu á hvern kílómetra er í
    samræmi við fjármálaáætlun og markmið stjórnvalda um að gjaldið skili
    ríkissjóði því sem svarar til 1,7% af þjóðarframleiðslu. Þetta er til að
    efla uppbyggingu innviða landsins og ná tekjum í samræmi við upphaflegt
    markmið, þ.e. að tekjur verði svipaðar og á árinu 2017. Hækkun bankaskatts
    er sanngirnismál. Það er vert að hafa í huga að þegar skatturinn var
    lækkaður hér um árið skilaði sú lækkun sér ekki til neytenda og því er
    ekki við að búast að hækkunin skelli á neytendum alfarið ef litið er til
    sögunnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er mikilvægt fyrir allan þorra almennings að við náum endum
    saman í þessu frumvarpi og að fjárlögunum verði skilað með afgangi. Það
    dregur úr lánsfjárþörf ríkisins og eftirspurn eftir fjármagni og ætti því
    að leiða til lægri vaxta og minni verðbólguvæntinga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tel rétt að minnast örlítið hér í lokin á verðbólguvæntingar.
    Það er ákveðin ábyrgð sem hvílir á okkur þingmönnum þegar við erum að ræða
    hér um þetta frumvarp, að það sé ekki spilað á að það sé í rauninni allt
    að fara til fjandans. Eins og ég nefndi í ræðu minni í upphafi eru
    skilyrði þjóðarbúsins góð. Hlutirnir eru virkilega jákvæðir. Við erum að
    fá góð verð fyrir helstu útflutningsvörur samfélagsins. Við erum hér með
    ferðamenn og hér er í rauninni allt í blóma. Það er ekkert sem segir annað
    en að stjórnmálamenn, sem ætla að vera ábyrgir í störfum sínum, eigi að
    nota góðærið sem núna ríkir til þess að greiða upp skuldir sem var safnað
    á fyrri árum til þess að ná vöxtum niður og hagsæld í samfélaginu til
    frambúðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>